Vikan - 13.07.1999, Side 59
Kæri Póstur
Ég er 18 ára stelpa sem bý
í litlu plássi úti á landi. Ég
bý enn heima hjá pabba og
mömmu og er að verða
brjáluð á því. Þau eru rosa
góð við mig og allt það en
ég er orðin þreytt á því að
vera litla barnið þeirra. Mér
finnst þau ofvernda mig og
ekki hafa nokkurn skilning á
því að ég er sjálfstæð mann-
eskja. Ég á tvö eldri systkini
sem eru flutt að heiman og
mér finnst eins og foreldrar
mínir vilji ekki sleppa af
mér takinu. Mig langar að
flytja suður og fara að vinna
en ég vil ekki særa þau.
Hvað get ég gert?
Með von um að þú svarir
fljótt, ein sem vill veröa
sjálfstœð.
Það er eðlilegt að þú viljir
vera sjálfstæð og átján ára
gömul manneskja er sjálf-
ráða einstaklingur. Það get-
ur stundum verið erfitt fyrir
foreldra að sleppa takinu af
börnunum sínum og þá ekki
hvað síst því yngsta sem enn
er heima. Foreldrum þínum
þykir greinilega mjög vænt
um þig og líklega er það
ástæðan fyrir því að þau
halda fast. Þú ættir að
treysta þeim nógu vel til
þess að setjast niður eina ró-
lega kvöldstund og ræða
málin af varfærni. Það er alls
ekki víst að þau átti sig á af-
stöðu þinni til málanna. Ef
þig langar að flytja á höfuð-
borgarsvæðið krefst það
undirbúnings (að fá vinnu,
skólavist og húsnæði). Fáðu
þau til að taka þátt í undir-
búningnum með þér því ef
að þau fá að hafa hönd í
bagga með hvað þú gerir,
verða þau ekki eins áhyggju-
full og geta þá jafnvel losað
aðeins um takið í leiðinni.
Eins væri gott að ræða við
eldri systkinin sem eru flutt
að heiman og ættu að geta
gefið þér góð ráð. Gangi þér
vel.
Kæri Póstur
Dóttir mín er fjórtán ára
og nýbyrjuð á föstu með
jafnaldra sínum. Ég veit
ekki hvort þau eru farin að
lifa kynlífi og satt best að
segja þá get ég varla hugsað
þá hugsun til enda. Þau eru
bara börn. Mig langar að
ræða þessi mál við dóttur
mína og þá sérstaklega út
frá getnaðarvörnum en mig
brestur alltaf kjark til þess.
Ég er líka hrædd um að hún
sé alls ekki tilbúin og alveg
viss um að hún komi til með
að bera skaða af kynlífs-
brölti á unga aldri. Hefur þú
einhver ráð handa mér?
Hvenær er eðlilegt að ung-
lingar fari að stunda kynlíf?
Áhyggjufull móðir.
P.s. Mér finnst Vikan frá-
bært blað og býð alltaf
spennt eftir lífsreynslusög-
unum.
Það er misjafnt hvenær
ungt fólk fer að stunda kyn-
líf og fer eftir þroska við-
komandi einstaklings
hvenær hann er tilbúinn. Þú
segist vilja ræða málin við
dóttur þína sem er mjög já-
kvætt og þú skyldir ekki
hika við það. Það er sjálfsagt
að ræða við börnin okkar
um kynlíf og getnaðarvarnir.
Varastu þó að banna henni
að stunda kynlíf; það eykur
líkurnar á því að henni finn-
ist það þá meira spennandi
fyrir vikið. Segðu henni að
ábyrgðin liggi hjá henni og
ákvarðanir hennar ættu ekki
að vera undir áhrifum vin-
kvenna eða strákanna sem
hún umgengst. Forðastu
umfram allt að þetta verði
feimnismál, bíttu á jaxlinn
og ræddu við dóttur þína um
ábyrgt kynlíf og getnaðar-
varnir fyrr en síðar. Það
verður örugglega ekki eins
erfitt og þú heldur.
Elsku, besti Póstur!
Ég hef ekki hugmynd um
hvert ég get leitað með
vandamál mitt og er að vona
að þú getir hjálpað. Ég er
mjög óánægð með útlit mitt
því ég er feit og asnalega
vaxin. Ég er 1.62 á hæð og
75 kíló. Svo er ég með svo
lítil brjóst. Mig langar í fitu-
sog og brjóstastækkun en
mér er sagt að það sé svaka-
lega dýrt og kannski hættu-
legt. En hvað með allar
þessar kvikmyndastjörnu#—
sem sagt er að séu alltaf í
lýtaaðgerðum og líta bara
mjög vel út? Á ég að slá til
og leggja út í þetta?
Svava
Eflaust veist þú nú þegar
að hollt fæði og góð hreyf-
ing er besti kosturinn til að
léttast og styrkja kroppinn.
Áður en þú hugar að fegr-
unaraðgerðum skaltu láta
reyna á aðrar aðferðir. Þú
gætir t.d. farið í líkamsrækt.
Til er fjöldinn allur af frá-
bærum heilsustöðvum sem
bjóða upp á margs konar
þjálfun. Þú gætir ef til vill
leyft þér að ráða þér einka-
þjálfara sem getur virkilega
gefið sig að þér og þínum
vandamálum með persónu-
legri ráðgjöf og hvatningu.
Minnkaðu matinn smám
saman og skiptu út Mars
súkkulaði fyrir Prins Póló,
léttpoppi fyrir bland í poka
og drekktu eina stóra kók-
dós á dag í stað þess tveggja
lítra. Þú þarft alls ekki að
neita þér um allt til að létt-
ast. Spurningin snýst fyrst
og fremst um breytt hugar-
far. Ef þú treystir þér ekki
strax í leikfimi, farðu þá í
hressilegan göngutúr einu
sinni á dag og mundu eftir
vasadiskóinu til að halda þér
í stuði. Lýtalækningar eru
dýrar og geta verið áhættu-
samar.