Vikan - 17.10.2000, Blaðsíða 36
u d r a u m u r
Botn;
120 g smjör
350 g púðursykur
140 g suðusúkkulaði
340 g hveiti
2 egg
2 tsk. lyftiduft
2 1/2 tsk. matarsódi
55gkakó
rúml. 2 dl mjólk
1 tsk. vanilludropar
80 g valhnetur, smátt saxaðar
Kreni:
65gkakó
500 g flórsykur
2 1/2 msk síróp
80 g smjör
3/4 dl vatn
1-2 msk. lagað kaffi
Aðferð:
Púðursykur og smjör er hrært
vel saman, síðan er eggjum bætt
saman við einu í einu. Súkkulað-
iðerbrættyfirheitu vatnsbaði og
sett saman við. Mjólk og síðan
þurrefnum er blandað saman við
oghrærtvel íog aðendingu erfín-
söxuðum valhnetum blandað
saman við. Setjið í tvö vel smurð
hringform, u.þ.b. 24-26 sm í
þvermál, og bakið í 175-185
gráðu heitum ofni í u.þ.b. 25-
30 mínútur, fer eftir gæðum ofns-
ins.
Kremið:
Kakói, flórsykri, sírópi ogsmjöri
er blandaðsaman í potti, hitað við
vægan hita og hrært í á meðan.
Þegar innihaldið er farið að
blandast vel er kaffinu bætt út í
ásamt vanilludropum. Þeytið
saman í u.þ.b. 5-8 mínútur. Að
endingu er kreminu smurt á milli
tertubotnanna og svo ofan á kök-
una og á hliðar hennar.
Skreytingar:
Alls kyns aðferðir eru að skreyta
kökur og nauðsynlegt er að leyfa
hugmyndafluginu að ráða ferð-
inni. Á endanum er það alltaf
bragðið sem hefur mest að segja,
síðan útlitið.
Verði ykkur að góðu!
36
Vikan