Vikan - 17.10.2000, Blaðsíða 46
öðru eins og þau væru hrædd
við að minnsta snerting kæmi
tilfinningum þeirra aftur í upp-
nám. Á leiðinni heim reyndi
Charlotte aðfinna skynsamlega
skýringu á því sem hafði gerst
en gafst upp á því. Annað kvöld
ætluðu þau að borða saman ...
hún titraði þegar hún rifjaði upp
kossa hans ... ef einn kossgæti
haft slík áhrif á hana hvað þá
ef...?
,,Ég verð ekki í mat í kvöld,"
sagði Charlotte kæruleysislega
við mömmu sína við morgun-
verðarborðið. ,,Ég fer út að
borða með ... með Daniel."
Hún reyndi að láta sem ekk-
ert væri en vissi að hún gæti
ekki platað mömmu sína. Rödd-
in var óstyrk og hún roðnaði
undir andlitsfarðanum eins og
skólastelpa.
Mamma hennar hafði vit á því
að gera enga athugasemd aðra
en þá að spyrja hvort hún kæmi
heim til þess að skipta um föt
eða hvort hún færi beint af skrif-
stofunni
Charlotte sagðist ekki vera
viss. Hún vonaði að hún kæm-
ist heim. Hún var að vona að
hún hefði tíma til þess að skipta
um föt og fara í eitthvað annað
en vinnufötin, kannski í kjól-
inn sem hún hafði verið í þeg-
ar hún fór út að borða með
Söruh. Þaðværi líkagottaðgeta
þvegið hárið, farið í sturtu og
smurt líkamann með góðu ilm-
mjólkinni sem Sarah og Tony
höfðu gefið henni í jólagjöf.
Hún vissi að hugsanir henn-
arstefndu íhættulega átt. Hafði
hún nokkru sinni farið á stefnu-
mót og vitað fyrirfram hvernig
kvöldið endaði, vitað að það
endaði í rúminu
Á háskólaárunum hafði hún
verið með manni sem hún taldi
sér trú um að hún elskaði.
Aldrei hafði honum tekist að
kveikja í henni þrá í líkingu við
þá sem hún upplifði í örmum
Daniels daginn áður. Nóttina
áður hafði hún legið andvaka og
ímyndað sér Daniel við hlið sér,
ímyndað sér hendur hans,
munn hans ... lyktina af líkama
hans.
Þau Bevan höfðu oft rætt um
að lifa saman kynlífi og þær um-
ræður höfðu verið líkastar því
sem þau væru að ræða um kaup
á fasteign. Þau höfðu á yfirveg-
aðan hátt komist að þeirri nið-
urstöðu að það væri ekki tíma-
bært, þau vildu bíða þar til
streitufu11ur lífsmáti þeirra
leyfði þeim að hafa tíma til þess
að þróa þá hlið sambandsins.
„Þegar að því kemur skulum
við leigja lítinn kastala í Frakk-
landi ogeyða hverju kvöldi íást-
arleikjum fyrirframan arininn,"
hafði Bevan sagt á dramatískan
hátt. Satt að segja hafði hjarta
lföðvabólga 9
Höfuðverkur 9
BlOflex seeulmeóferó hefur slegið í
ræða segutpynnur í 5 stærðum sem
húðvænum plástri.
Ég hef kvalist af höfuðverk
og vöðvabólgu í hnakka í
mörg ár, reynt flest sem í
boði er án árangurs.
Ótrúlegt en satt að tvær
segulþynnur geti breytt
öllu. Mæli svo sannarlega
með þeim.
Kristjana Kristjánsdóttir, nemi
Segulþynnurnar eru fáanlegar
í flestum lyfjaverslunum,
Heilsuhúsinu, Yggdrasil og
Græna Torginu - Blómavali
ítarlegar islenskar leiðbeiningar
fylgja með og einnig liggja
kynningarbæklingarframmi á
sölustöoum.
Upplýsingasími er 588 2334
Höfuðverkur
Hnakki
• Axlir
• Tennisolnbogi
• Bakverkir
• Liðaverkir
• Þursabit
• Hné
• Æðahnútar
• Ökklar
SCANDINAVtA
Dæmi þar sem BlOflex
segulþynnan hefur sýnt
frabær áhrif
hennar ekki tekið eitt einasta
aukaslag við þá yfirlýsingu. Aft-
ur á móti þurfti ekki nema eitt
augnati11it og litla snertingu frá
Daniel til þess að hjartað virt-
ist ætla að springa í brjósti
hennar.
Þótt hún ætti erfitt með að
átta sig á tilfinningum sínum
var hún samt viss um að þau
Daniel ættu vel saman, bæði
andlega og líkamlega. Og hann
hlaut að vera hrifinn af henni,
annars hefði hann ekki sagt það
sem hann sagði og gert það sem
hann gerði.
Hún söng fyrir munni sér á
leiðinni í vinnuna. Hún hlakk-
aði til dagsins jafnvel þótt hún
vissi að Daniel yrði við réttar-
höld megnið af deginum.
f kvöld yrðu þau saman. í
kvöld ... en það var svo langt
þangað til ... Þegar hún gekk
inn á skrifstofuna sína horfði
hún döpur á lokaðar dyrnar á
milli skrifstofanna. Skyndilega
réð hún ekki við sig, opnaði
dyrnar og fór inn á skrifstofu
Daniels.
Skrifborðið var autt. Hún
renndi fingurgómunum yfir
borðið ogstólinn, lokaði augun-
um og dró djúpt að sér andann.
Hún var viss um að geta fund-
ið lyktina af sápunni hans í
gegnum lyktina af leðri og bón-
uðum viði. Hún opnaði augun
og hló með sjálfri sér fyrir hugs-
anir sínar. Áugu hennar Ijóm-
uðu og bros lék um varir henn-
ar þegar hún rifjaði upp lykt-
ina af húð hans þegar hann
kyssti hana og hvíslaði í eyra
hennar að hún væri með silki-
mjúkt hár.
Allt í einu opnuðust dyrnar.
Charlotte sneri sér snögglega
við og eftirvænting skein úr
augum hennar. En það var ekki
Daniel sem stóð í dyrunum. Það
var Patricia Winters.
,,Hvar er Daniel?" spurði hún
frekjulega.
Charlotte roðnaði af reiði.
Patricia kunni greinilega enga
mannasiði. En svo minnti hún
sig á að Patricia væri skjólstæð-
ingur og sagði eins kurteislega
og hún gat: ,,Hann þurfti að
mæta í réttinn. Get ég eitthvað
aðstoðað þig?“
,,Mér þykir það ákaflega ólík-
legt," svaraði Patricia, struns-
aði út og skildi eftir sig ský af
sterkri ilmvatnslykt.
Charlotte opnaði gluggann til
þess að losna við lyktina.
Skyldu Daniel og Patricia hafa
verið elskendur? Eða var það
rétt sem Anne og Ginny höfðu
gefið í skyn; að Patricia væri
að eltast við hann en hann hefði
engan áhuga?
Hún gekk hugsandi inn á
skrifstofu sína. Hún var búin
að vinna nógu lengi með Dani-
el til þess að geta sagt með
sanni að hann myndi aldrei gera
neitt sem honum væri á móti
skapi. Hann var einfaldlega ekki
sú manngerð. Hann var heil-
steyptur maður. Hún hafði orð-
ið að viðurkenna það fyrir sjálfri
sér jafnvel meðan hún var enn
þá reið út í hann, þegar henni
fannst hann dæma sig rang-
lega. Hún var löngu hætt að
vera reið út í hann, hún vissi
að hann treysti henni fullkom-
lega og nú hafði hann meira að
segja lýst því yfir að honum
fyndist hún dýrmætur starfs-
kraftur.
Hann hafði líka sagst þrá
hana sem konu. Charlotte leit
út um gluggann og sá Patriciu
ganga yfir götuna og nema svo
staðar til þess að tala við mann
sem kom á móti henni. Þetta ^
var hávaxinn, gráhærður mað-
ur og það var auðséð á svip
hennar að hann hafði sagt eitt-
hvað sem var henni að skapi.
Þau gengu áfram, Patricia tal-
aði, og maðurinn hlustaði af at-
hygli á það sem hún sagði.
Charlotte settist við skrifborð-
ið. Hún gat ekki hugsað sér að
byrja á nokkrum sköpuðum
hlut. Allt sem þú þarfnast er
svolítill sjálfsagi, stúlka mín,
sagði hún við sjálfa sig. Þú varst
ekki ráðin hingað til þess að
sitja og láta þig dreyma.
Én draumarnir börðu upp á
án þess að hún fengi nokkru
ráðið. Athyglin rauk hvað eftir
annað út í veður og vind og hún
gat ekki hugsað um annað en
Daniel.
Hún hrökk í kút þegar sím-
inn hringdi.
,,Charlotte ..." i
Hún stífnaði upp þegar hún
heyrði rödd Daniels.
,,Ég er á hlaupum og verð að
vera stuttorður. Mig langaði
bara að vita hvort þú kæmist
ekki örugglega í kvöld. Það lít-
ur út fyrir að ég verði við mál-
flutning í allan dag og kemst llk-
lega ekkert á skrifstofuna. Er
það í lagi þín vegna að ég sæki
46
Vikan