Vikan


Vikan - 17.10.2000, Page 63

Vikan - 17.10.2000, Page 63
Mamman Spá Vikunnar íHP Hrúturinn 21. mars - 20. apríl Það er Ijómi yfir öllu sem þú tekur þér fyrir hendur þessa viku og margir einhleypir hrút- ar munu verða í sviðsljósinu hjá hinu kyninu á næstunni. Það hefur verið annasamur tími undanfarið en nú getur þú farið að slaka á og gæta að því sem gleymst hefur í látunum. Tuíburinn 22. maí - 21. júní Þú ert í mikilli uppsveiflu og ýmis verk sem þú hefur ekki getað lokið eru allt í einu létt og löðurmannleg. Þú verður var/vör við mikla framför hjá sjálfum/sjálfri þér á mörgum sviðum og öðlast bjartsýni sem þig hefur skort lengi. /kk Krabbinn 22. júní - 23. júlí Nú fer að hægjast um hjá þér aftur eftir mik- inn hvell. Þú ættir að leita leiðbeininga til sérfræðings í mataræði, líkamsrækt eða einhverju öðru sem gæti hresst upp á líkama þinn því hann er farinn að þarfnast aðhlynningar eftir langa van- rækslu. □ Liónið 24. júlí - 23. ágúst Það er ótrúlega mikið að gera hjá þér núna og þér finnst þú ekki sjá fram úr verkefnun- um og fundahöldunum. Þú ættir að skipu- le9gja tíma þinn vel. Það er ekki góður tími til að fjár- festa, ekki kaupa neitt dýrt fyrr en eftir mánaðamótin! aMeyjan 24. ágúst • 23. september Flestar meyjur eru í miklu stuði þessa dag- ana og eru að gera góða hluti varðandi lík- ama sinn og heilsu. Það er mikið orku- streymi í kringum þig og þú ættir að notfæra þér það til að byggja upp fyrir framtíðina. Vogin 24. september - 23. október Þú ert búinn að eiga nokkuð góða daga í byrj- un þessa mánaðar en þú hefur ekki verið að hugsa um peninga. Nú er hins vegar kominn rétti tíminn til að græða! Þú ættir að eiga góða möguleika á að vinna þér inn góða fúlgu í vikunni og líkurnar á góðri innkomu aukast eftir því sem nær dregur mánaðamótum. Nautið 21. apríl - 21. maí Það gengur allt nautunum í haginn þennan mánuðinn og þessi vika veður ein af þeim bestu, því nú er allt í hámarki og þú ferð að uppskera eftir því sem þú hefur sáð fyrr í mánuðinum. Þú átt skilið að veita þér einhvern munað. Sporðdrekinn 24. október - 22. nóvember Þeir sem hafa átt við heilsuvandamál að stríða geta loksins farið að hlakka til betri tíma. Margir sþorðdrekar eru haldnir mikilli hreiðurgerðarhvöt þessa dagana og það er góður tími til að skipuleggja heimilið og kaupa það sem vantar til að gera það notalegt. M Bogmaðurinn 23. nóvember - 21. desember Þú ert að hverfa svolítið inn í þig og þarft á ein- veru að halda. Gefðu þér tíma til að slaka á og hugsa þinn gang í rólegheitum. Þú ert tilbú- in(n) til að axla ábyrgð sem þú hefur forðast fram að þessu. --------- n. - Steingeitm 22. desember - 20. janúar Alls konar hreingerningar, bæði veraldlegar og andlegar eiga sér stað um þessar mundir og þú munt gera hreint fyrir þínum dyrum ekki síður en þeir sem næstir þér eru. Það mun boða gott fyrir framtíðina. Vatnsberinn 21. janúar - 19. febrúar Þeir sem eru ólofaðir gætu hitt maka sinn í þessari viku eða næstu. Jafnvel þótt svo verði ekki mun síðari hiuti mánaðarins verða þér einstaklega góður félagslega og þú munt eignast vini eða kunningja til frambúðar. Fiskarnir 20. febrúar - 20. mars Fjármálin eru að taka einhverja undarlega stefnu hjá mörgum fiskum þessa dagana og það er engu líkara en að þau séu að verða að ástar- eða tilfinningamálum! Þú ert að vinna þig upp í áliti í fjárhagslegu tilliti og átt eftir að finna það betur þeg- ar líður á mánuðinn.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.