Vikan - 17.10.2000, Blaðsíða 63
Mamman
Spá Vikunnar
íHP
Hrúturinn
21. mars - 20. apríl
Það er Ijómi yfir öllu sem þú tekur þér fyrir
hendur þessa viku og margir einhleypir hrút-
ar munu verða í sviðsljósinu hjá hinu kyninu
á næstunni. Það hefur verið annasamur tími undanfarið
en nú getur þú farið að slaka á og gæta að því sem
gleymst hefur í látunum.
Tuíburinn
22. maí - 21. júní
Þú ert í mikilli uppsveiflu og ýmis verk sem
þú hefur ekki getað lokið eru allt í einu létt
og löðurmannleg. Þú verður var/vör við
mikla framför hjá sjálfum/sjálfri þér á mörgum sviðum og
öðlast bjartsýni sem þig hefur skort lengi.
/kk
Krabbinn
22. júní - 23. júlí
Nú fer að hægjast um hjá þér aftur eftir mik-
inn hvell. Þú ættir að leita leiðbeininga til
sérfræðings í mataræði, líkamsrækt eða
einhverju öðru sem gæti hresst upp á líkama þinn því
hann er farinn að þarfnast aðhlynningar eftir langa van-
rækslu.
□ Liónið
24. júlí - 23. ágúst
Það er ótrúlega mikið að gera hjá þér núna
og þér finnst þú ekki sjá fram úr verkefnun-
um og fundahöldunum. Þú ættir að skipu-
le9gja tíma þinn vel. Það er ekki góður tími til að fjár-
festa, ekki kaupa neitt dýrt fyrr en eftir mánaðamótin!
aMeyjan
24. ágúst • 23. september
Flestar meyjur eru í miklu stuði þessa dag-
ana og eru að gera góða hluti varðandi lík-
ama sinn og heilsu. Það er mikið orku-
streymi í kringum þig og þú ættir að notfæra þér það til
að byggja upp fyrir framtíðina.
Vogin
24. september - 23. október
Þú ert búinn að eiga nokkuð góða daga í byrj-
un þessa mánaðar en þú hefur ekki verið að
hugsa um peninga. Nú er hins vegar kominn
rétti tíminn til að græða! Þú ættir að eiga góða möguleika á
að vinna þér inn góða fúlgu í vikunni og líkurnar á góðri
innkomu aukast eftir því sem nær dregur mánaðamótum.
Nautið
21. apríl - 21. maí
Það gengur allt nautunum í haginn þennan
mánuðinn og þessi vika veður ein af þeim
bestu, því nú er allt í hámarki og þú ferð að
uppskera eftir því sem þú hefur sáð fyrr í mánuðinum. Þú
átt skilið að veita þér einhvern munað.
Sporðdrekinn
24. október - 22. nóvember
Þeir sem hafa átt við heilsuvandamál að
stríða geta loksins farið að hlakka til betri
tíma. Margir sþorðdrekar eru haldnir mikilli
hreiðurgerðarhvöt þessa dagana og það er góður tími til
að skipuleggja heimilið og kaupa það sem vantar til að
gera það notalegt.
M
Bogmaðurinn
23. nóvember - 21. desember
Þú ert að hverfa svolítið inn í þig og þarft á ein-
veru að halda. Gefðu þér tíma til að slaka á og
hugsa þinn gang í rólegheitum. Þú ert tilbú-
in(n) til að axla ábyrgð sem þú hefur forðast fram að þessu.
--------- n. -
Steingeitm
22. desember - 20. janúar
Alls konar hreingerningar, bæði veraldlegar
og andlegar eiga sér stað um þessar mundir
og þú munt gera hreint fyrir þínum dyrum
ekki síður en þeir sem næstir þér eru. Það mun boða gott
fyrir framtíðina.
Vatnsberinn
21. janúar - 19. febrúar
Þeir sem eru ólofaðir gætu hitt maka sinn í
þessari viku eða næstu. Jafnvel þótt svo
verði ekki mun síðari hiuti mánaðarins verða
þér einstaklega góður félagslega og þú munt eignast vini
eða kunningja til frambúðar.
Fiskarnir
20. febrúar - 20. mars
Fjármálin eru að taka einhverja undarlega
stefnu hjá mörgum fiskum þessa dagana og
það er engu líkara en að þau séu að verða
að ástar- eða tilfinningamálum! Þú ert að vinna þig upp í
áliti í fjárhagslegu tilliti og átt eftir að finna það betur þeg-
ar líður á mánuðinn.