Vikan


Vikan - 17.10.2000, Blaðsíða 4

Vikan - 17.10.2000, Blaðsíða 4
Kærí lesandi Yrðu skólabúningar lausn ? fldanfania daga hef ég verið að sannfœr- ast um að sennilega vœri hest að taka upp skólabúninga á íslandi. Mér hafði að vísu dottið þetta í hugfyrr, enféllfrá þessari hugmynd aftur því ég hélt kannski að það yrði of fjöldafram- leiðslulegt fyrir Islendinga. En ég held að nú sé rétti tíminn til að íhuga þetta mál ífullri alvöru því tveir foreldrar kynntu mér þessa hugmynd í síðustu viku og ég gœti trúað að þetta vœri það bestafyrir alla. Eg hef átt samtöl við marga foreldra skólabarna á aldrinum 8-15 ára og það ber allt að sama brunni, foreldrarnir eru að kikna undan fatakaupunum og þrýstingnum frá börnunum. Faðirfjög- urra barna sagði við mig að þessi tískusýning í skólunum, og valdabaráttan sem henni fylgdi,vœri gjörsamlega að kollvarpa heimilisfjárhagnum. Þessi faðir er þó ekki einn afþeim verst settu í þjóðfélaginu, síður en svo. Einstæð móðir 11 ára gamallar stúlku sagði mér að hún hefði ekki átt fyrir mat í septernber vegna fatakaupa handa dótturinni fyrir skólann en þráttfyrir það var engan veginn hœgt að kaupa það sem þurfti til að haldafriðinn á heimilinu. Dóttirin kemur varla svo heim úr skólanum að hún kvarti ekki undan stríðni vegna þess að buxurnar hennar eru ekki afréttri gerð. Móðir tvíburastúlkna sagði mér að hún hefði loks láitið undan grátinum þegar stelpurnar hennar sögðu að allar hinar stelpurn- ar í bekknum œttu vissa tegund af sundfatnaði en komst þó að því að dætur hennar höfðu ekki sagt alveg réttfrá því önnur missti út úr sér: „ Vá nú eigum við fjórar svona, “ þegar hún mátaði nýju flíkina ífyrsta skipti. Fjölmargir foreldrar hafa talað um þessa sömu hluti; tísku- og merkjadellan í skólunum er gengin út í öfgar og þau barnanna sem ekki geta tekið þátt í keppninni verða útundan og eru jafnvel lögð í einelti. Einhvern veginn verður að stoppa þetta þó ekki vœri nema til að lœgja öldurnar meðal barnanna. Kannski er það hœgt með því að hafa skólabúninga á Islandi. Það mœtti t.d. byrja á skólabuxum og -peysum svo foreldrar og börn gœtu þá keypt hlífðarfatnað að eigin vali. Það mœtti líka hafa visstfrjáls- ræði í búningunum og gefa börnunum kost á að velja úr tveim sniðum og nokkrum litum affatnaðinum þannig að þau séu ekki öll nákvœmlega eins. Eg er viss um að þetta mundi spara foreldr- um mikiðfé sem mœtti nýta á uppbyggilegri hátt fyrir börnin, og auk þess myndi þetta spara mörgu barninu mikla sálarkvöl. Ég las um daginn viðtal við Jónínu Bjartmarz, formann samtak- anna Heimili og skóli. Mér fannst foreldrasamningur samtakanna aldeilis stórkostlegur og ég vona svo sannarlega að semflestir foreldrar kynni sér hann og skrifi undir. Samtökin eru í góðri að- stöðu til að rœða það að taka upp skólabúninga og það væri gaman að heyra hvernig þessi lausn legðist íforeldra og skóla- stjórnendur? Jólianna Harðardóttir ritsjóri Forsíðufyrirsæta: Árndís Hulda Óskarsdóttir Förðun: Anna Tolier Ritstjórar: Jóhanna G. Harðardóttir og Hrund Hauksdóttir, vikan@?frodi.is. Útgefandi: Fróði hf. Seljavegi 2, simi: 515 5500 fax: 515 5599. Stjórnarformaður: Magnús Hreggviðsson. Aðalritstjóri: Steinar J. Lúðvíksson, sími: 515 5515. Framkvæmdastjóri: Halldóra Viktorsdóttir, síml: 515 5512. Blaðamenn: Steingerður Steinarsdóttir, Gunnhildur Lily Magnúsdóttir, Guðríður Haraldsdóttir og Margrét V. Helgadóttir. Auglýsingastjórar: Ingunn B. Sigurjónsdóttir og Sigríður Sigurjónsdóttir vikanaugl@frodi.is. Grafískur hönnuður: Guðmundur Ragnar Steingrimsson. Verð í lausasölu 459 kr. Verð í áskrift ef greitt er með greiðslukorti 344 kr. á eintak. Ef greitt er með gíróseðli 390 kr. á eintak. Litgreining og myndvinnsla: Fróði hf. Unnið i Prentsmiðjunni Odda hf. Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir. Áskriftarsími: 515 5555 4 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.