Vikan - 17.10.2000, Page 4
Kærí lesandi
Yrðu skólabúningar lausn ?
fldanfania daga hef
ég verið að sannfœr-
ast um að sennilega
vœri hest að taka upp
skólabúninga á íslandi. Mér hafði að
vísu dottið þetta í hugfyrr, enféllfrá
þessari hugmynd aftur því ég hélt
kannski að það yrði of fjöldafram-
leiðslulegt fyrir Islendinga. En ég held
að nú sé rétti tíminn til að íhuga þetta mál ífullri alvöru því tveir
foreldrar kynntu mér þessa hugmynd í síðustu viku og ég gœti
trúað að þetta vœri það bestafyrir alla.
Eg hef átt samtöl við marga foreldra skólabarna á aldrinum 8-15
ára og það ber allt að sama brunni, foreldrarnir eru að kikna
undan fatakaupunum og þrýstingnum frá börnunum. Faðirfjög-
urra barna sagði við mig að þessi tískusýning í skólunum, og
valdabaráttan sem henni fylgdi,vœri gjörsamlega að kollvarpa
heimilisfjárhagnum. Þessi faðir er þó ekki einn afþeim verst settu
í þjóðfélaginu, síður en svo. Einstæð móðir 11 ára gamallar
stúlku sagði mér að hún hefði ekki átt fyrir mat í septernber vegna
fatakaupa handa dótturinni fyrir skólann en þráttfyrir það var
engan veginn hœgt að kaupa það sem þurfti til að haldafriðinn á
heimilinu. Dóttirin kemur varla svo heim úr skólanum að hún
kvarti ekki undan stríðni vegna þess að buxurnar hennar eru ekki
afréttri gerð.
Móðir tvíburastúlkna sagði mér að hún hefði loks láitið undan
grátinum þegar stelpurnar hennar sögðu að allar hinar stelpurn-
ar í bekknum œttu vissa tegund af sundfatnaði en komst þó að því
að dætur hennar höfðu ekki sagt alveg réttfrá því önnur missti út
úr sér: „ Vá nú eigum við fjórar svona, “ þegar hún mátaði nýju
flíkina ífyrsta skipti.
Fjölmargir foreldrar hafa talað um þessa sömu hluti; tísku- og
merkjadellan í skólunum er gengin út í öfgar og þau barnanna
sem ekki geta tekið þátt í keppninni verða útundan og eru jafnvel
lögð í einelti. Einhvern veginn verður að stoppa þetta þó ekki
vœri nema til að lœgja öldurnar meðal barnanna. Kannski er það
hœgt með því að hafa skólabúninga á Islandi. Það mœtti t.d.
byrja á skólabuxum og -peysum svo foreldrar og börn gœtu þá
keypt hlífðarfatnað að eigin vali. Það mœtti líka hafa visstfrjáls-
ræði í búningunum og gefa börnunum kost á að velja úr tveim
sniðum og nokkrum litum affatnaðinum þannig að þau séu ekki
öll nákvœmlega eins. Eg er viss um að þetta mundi spara foreldr-
um mikiðfé sem mœtti nýta á uppbyggilegri hátt fyrir börnin, og
auk þess myndi þetta spara mörgu barninu mikla sálarkvöl.
Ég las um daginn viðtal við Jónínu Bjartmarz, formann samtak-
anna Heimili og skóli. Mér fannst foreldrasamningur samtakanna
aldeilis stórkostlegur og ég vona svo sannarlega að semflestir
foreldrar kynni sér hann og skrifi undir. Samtökin eru í góðri að-
stöðu til að rœða það að taka upp skólabúninga og það væri
gaman að heyra hvernig þessi lausn legðist íforeldra og skóla-
stjórnendur?
Jólianna Harðardóttir ritsjóri
Forsíðufyrirsæta:
Árndís Hulda Óskarsdóttir
Förðun: Anna Tolier
Ritstjórar: Jóhanna G. Harðardóttir og Hrund Hauksdóttir, vikan@?frodi.is. Útgefandi: Fróði hf. Seljavegi 2, simi: 515
5500 fax: 515 5599. Stjórnarformaður: Magnús Hreggviðsson. Aðalritstjóri: Steinar J. Lúðvíksson, sími: 515 5515.
Framkvæmdastjóri: Halldóra Viktorsdóttir, síml: 515 5512. Blaðamenn: Steingerður Steinarsdóttir, Gunnhildur Lily
Magnúsdóttir, Guðríður Haraldsdóttir og Margrét V. Helgadóttir. Auglýsingastjórar: Ingunn B. Sigurjónsdóttir og
Sigríður Sigurjónsdóttir vikanaugl@frodi.is. Grafískur hönnuður: Guðmundur Ragnar Steingrimsson.
Verð í lausasölu 459 kr. Verð í áskrift ef greitt er með greiðslukorti 344 kr. á eintak. Ef greitt er með gíróseðli 390 kr. á
eintak. Litgreining og myndvinnsla: Fróði hf. Unnið i Prentsmiðjunni Odda hf. Öll réttindi áskilin varðandi efni og
myndir.
Áskriftarsími: 515 5555
4
Vikan