Vikan - 05.12.2000, Blaðsíða 12
Samskipti k/njanna
. ysiog
skoáud:
Siáast
térvgd:
ktukkán:
Augíýsmg:
19 rvóvernber 2000
20:31
Mí£- H<e Eg er hér ein sem er aó leita rner að
híriuni ein i -;anr*a nddara 4 hvita hestinum.Med
þvi <ió auglysd her er eg >d vonast <j-3 hann komi
i Ijos h . i hann hefur ekki fundist hl besse. Kat *■ i
er eg aó byggja lottkastala sem ►'ktu eru til. ,en
eg œtia sarnt ad dvelja i þ^ssari trú eitthvaó
lengur..Hann þarf aó
vera..eml«egur goóur .trúr sjalfum ser og
oórum...hafc* góóa o/l -.em hann ei tilbúin aó
geta begar a þarf að halda...fyndm þegar þess
þarf meó...hafa gaman aó gera alskonar r»»ja
hluti og gamla...Naudstnlegt aó bu sért.hava nan
en eg. finnast gutt aó kúra og fullt meira serri eg
ætla ekki aó fara ió telja upp hér had getur
verió aó ég se aó gera miklar krotur en latió {*aó
ekki ' • “
'/'Mj/Sjá í
no «o a imwoi n*u»ui w *«*.•«
ti hríeda itlrrr. VlJ mrndum b»rj.) ji vinskaf)
Íja aidan hvert þad Imdir Kaor t nája
spennu í lífið. Það er eiginlega
fram hjá þeim og karlmönnum
sem eru í kynferðislegu svelti
heimafyrir. Viðhorf mitttil karl-
manna hefur breyst mikið á síð-
ustu þremur mánuðum."
En hvað finnst henni um að
vera einhvers konar nafnlaus
kynlífsvera á vefsíðu sem allir
hafa aðgangað? ,,Ég sé ekkert
athugavert við það og hef gam-
an af þessari reynslu. Ég er til
dæmis ekki jafnfordómafull og
ég var gagnvart alls kyns kyn-
hegðun sem oft er sögð afbrigði-
leg. Ég var í hjónabandi í rúm
tuttugu ár og þetta er algjör-
lega ný reynsla fyrir mig. Auð-
vitað er þarna mikið af sjúkum
einstaklingum, konum jafnt
sem körlum, en ég kann að forð-
ast þá. Það sem kemur mér
kannski mest á óvart er hversu
margir ungir menn eru að leita
að eldri konum í þeirri von að
þær taki að sér að kenna þeim
ástarlífsleiki. Einnig er þarna
mikið af giftum mönnum sem
eru að leita sér að viðhaldi. Ég
er í sjálfu sér tilbúin að reyna
þetta allt saman, ég er fráskil-
in, sjálfstæð kona og hef ekki
áhuga á fastri sambúð. Ég hef
aftur á móti áhuga á að vera í
sambandi við karlmenn, þetta
er frábær leið til þess að fá út-
rás fyrir kynhvötina, á mínum
eigin forsendum og án allra
skuldbindinga."
Hvort heldurþú að sé algeng-
ara að fólk sé í leit að
skyndikynnum eða maka á Net-
inu? Er það kannski að leita að
hvorutveggja? „Mér sýnist
meirihluti karlanna vera í leit að
skyndikynnum, að einhverri
hægt að líkja þessu við vírus,
þetta breiðist út mjög hratt. Fáir
vissu af þessum möguleika fyr-
ir nokkrum mánuðum, núna eru
fleiri þúsund manns þarna á
skrá. Margirfara inn á síðuna af
einskærri forvitni en oft hafa
myndast góð sambönd upp úr
þessum kynnum. Sjálf hef ég
fengið út úr þessu góða kyn-
lífsreynslu og hef í rauninni ekki
áhuga á neinu öðru. Ég er í
rauninni eingöngu í leit að
rekkjunaut. Ég leita ekki eigin-
manns, ekki með þessum hætti.
Allt getur gerst
Auðvitað getur allt gerst,
kannski hitti ég þarna góðan
mann sem ég vil vera með til
frambúðar. Þetta er sjálfsagt
ekki versta leiðin til þess að
finna maka og þessi aðferð er
mikið notuð erlendis. Ég bjó er-
lendis um langa hríð og þar
þótti eðlilegtaðfara þessa leið.
Enn þá eru menn ekki sömu
skoðunar á íslandi og þess
vegna er ég í hálfgerðum fel-
um með þetta. Annars finnst
mér þetta í rauninni bæði
skemmtilegt og fræðandi, ég er
að vinna að verkefni þar sem
ég nota mér þessa reynslu sem
gagnagrunn. Hluti af þessu
verkefni krefst þess að ég velti
fyrir mér mannlífinu í hinum
margvíslegustu myndum."
Nú ert þú nokkuð þekkt kona
í þjóðfélaginu, ertu aldrei
hrædd um að fólk komist að
þessu og noti það gegn þér?
,,Nei, það er líklega vegna þess
að ég er svo mikill spennufík-
ill. Allir vinir mínir vita
af þessu og ef einhver
karlmaður vildi hugs-
anlega nota þessa vit-
neskju gegn mér þá myndi ég
bara segja honum að það skipti
mig engu máli. Hann hefði
sennilega meiru að tapa en ég.
En vissulega er það rétt að fólk
verði að gæta sín vel í kynnum
af þessu tagi. En þaðgildir ekki
síður um sambönd sem verða til
á skemmtistöðunum. Málið er
bara það að þekkja sjálfan sig
og vita hvað maður er reiðubú-
inn til að láta bjóða sér. Kost-
urinn við kynni í gegnum Netið
er sá að maður kynnist mann-
inum ágætlega áður en farið er
á fyrsta stefnumótið. Auðvitað
kemur stundum í Ijós að mað-
urinn hefurgefið ranga mynd af
sér og stenst ekki kröfurnar sem
ég geri. En flestir mennirnir
sem ég hef hitt á þennan hátt
eru kurteisirogskemmtilegirog
ég hef líka farið út með allt
annarri manngerð, mönnum
sem hægt er að klæmast við og
gera sitthvað ,,fIippað“ með.
Það getur til dæmis verið gam-
an fyrir konur að klæmast, við
konurnar erum ekkert ólíkar
karlmönnum að því leyti, og
eins er gaman að hitta karl-
menn sem vilja leika alls kyns
,,fantasíu“leiki. Eitt hef ég lært
af þessum kynnum: Því ofar
sem fólk er í þjóðfélagsstigan-
um, því gáfaðri sem heilinn er,
því greindari eru kynfærin, ef
svo má að orði komast. Ég hef
þá skoðun að gáfað fólk hafi
sterkari kynhvöt, það leikur sér
miklu betur og er hugmyndarík-
ara.
Greindir menn bestir í
rúminu
Greindir karlmenn kunna bet-
ur að halda aftur af sér, eru ag-
aðri en kunna skemmtilegustu
kynlífsleikina. Það sama gildir
um greinda konu. Ég held að
konur upplifi sín bestu ár
kynferðislega á milli fertugs
og fimmtugs, kynlíf
kvenna á þeim aldri er
miklu betra en kvenna um
tvítugt. Maðurveit hvað
maður vill og þekkir lík-
ama sinn út og inn.
Það er líklega þess vegna sem
allir þessir ungu menn eru inni
á Netinu til þess að leita að sér
eldri konum. Sennilega má því
segja að vefurinn sé mikið
gósenland fyrir mig og þetta
hefur verið góður skóli. Ef ég
hefði kynnst vefsíðunni fyrrværi
ég eflaust búin að spara mér
heila milljón í kostnað vegna
sálfræðilegrar aðstoðar."
Hvað heldur þú um framtíð-
ina? Hætta vinkonurnar og vin-
irnir að fara á skemmtistaðina
í leit að lífsförunauti?
,,Já, ég held að Netið komi í
staðinn. Þessi skemmtistaða-
kynni eru svo sóðaleg. Yfirleitt
finnur þú aldrei karlmann á
þessum stöðum sem ekki er
dauðadrukkinn. Ég hef engan
áhuga á kynnum við sauðdrukk-
inn karlmann. Má ég þá frekar
biðja um velmenntaðan mann
sem er til í að koma heim að
gera það um miðjan dag. Hann
er þá alla vega edrú, hefur góða
reisn og getur staðið sig vel í
rúminu. Égfrábið mér að vakna
upp morguninn eftir pöbbarölt
með einhvern grúttimbraðan,
slefandi gæja við hliðina á mér,
vælandi af móral."
Ertu aldrei hrædd við að eitt-
hvað komi fyrir þig? Að einn
góðan veðurdag hittir þú fyrir
tölvuúlf í sauðargæru?
,,Nei, ég er bara með mönn-
um sem ég veit að ég get treyst
fullkomlegaogéghef aldrei lent
í vandræðum. Ég bý vel og býð
gjarnan þessum mönnum heim
til mín. Annars er kynlíf mitt
ekki bundið við Miðbæ Reykja-
vikur. Ég er á leiðinni til
Hollands í kynlífsferð með ein-
um elskhuga mínum. Mér
finnst það miklu skemmtilegra
en jólainnkaupsferðirnar sem
kynsystur mínar og jafnöldrur
fara gjarnan í í desember með
vinkvennahópnum. Ég er kona
en ég lifi eins og karlmaður. Það
eru réttindi kvenna í dag."
12
Vikan