Vikan - 05.12.2000, Blaðsíða 20
Samskipti kynjanna
nersónuleika
Ertu bjartsýnismaðurP
Ég hef gaman af því að skipuleggja það
skemmtilega sem ég á í vændum.
Ég er vingjarnleg(ur) og sé eitthvað gott í
öllum.
Ég hef verið sökuð/sakaður um að gefa ekki gaum
að tilfinningum og erfiðleikum annarra.
Það er eitthvað við orðið „skuldbinding" sem mér
líkar ekki.
Ég lít á það sem skyldu mína að sjá til þess að
öllum líði vel.
Ég vil hafa alla góða.
Ég hef verið sökuð/sakaður um að taka of mikið
að mér og gefa fólki ekki nógan tíma.
Ég er góð(ur) í að skipuleggja hlutina en á oft
í erfiðleikum með að framkvæma þá og
Ijúka þeim.
Ég get ekki hugsað mér að vinna með
einhverjum sem gagnrýnir mig.
Ég beiti persénutöfrum mínum til þess að
komast í gegnum erfiðar aðstæður.
Bjartsýnismaðurinn
Sjöurnar brosa stöðugt og eiga auðvelt
með að koma auga á björtu hliðarnar. Þær
hafa aftur á móti þann galla að loka aug-
unum fyrir öllu því sem óþægilegt er og hafa
tilhneigingu til þess að hlaupast frá erfið-
leikum. Margir líta svo á að sjöurnar séu
yfirborðskenndar vegna þess að þær brosa
alltaf í gegnum tárin.
Sjöurnar eru góð-
ar í að skipu-
leggja boð fyrir
vinina en ekki eins
góðar í að fylgja skipu-
laginu eftir. Þær
til að lofa
sér á marga staði
einu og pirra fólk
með því að koma of seint
eða allsekki. Sjöur eru satt að
segja ákaflega uppteknar af sjálf-
um sér.
Sjöurnar þurfa að læra að slappa af. Þær
geta öðlast meira innsæi með því að reyna
að setja sig í spor annarra, jafnvel þótt það
þýði að þær þjáist pínulítið. Þær þurfa líka
að læra að taka afleiðingum gerða sinna.
Þú getur hjálpað sjöunum með því
að láta óánægju þína í Ijósi þegar
þær koma aftan að þér og svíkja
gefin loforð. Reyndu að fá þær
til þess að skilja að framkoma
þeirra er oftar en ekki flótti frá
raunveruleikanum.
20 Vikan
Ertu stjórnsöm/-samurP
Ég tel mig ekki komast í gegnum lífið nema vera
„töff“.
í raun og veru er ég tilfinningavera. Það eru
bara ákaflega fáir sem vita það.
Ég þoli ekki fólk sem barmar sér og finnst það
hafa farið varhluta af öllu því góða í lífinu.
Ég veit hvernig á að gera hlutina.
Það er mér að mæta ef einhver gerir eitthvað á
hluta þeirra sem mér þykir vænt um.
Ég er fljótur að afgreiða vandamálin og þoli ekki
tvíræðni.
Ég þarf ekki endilega að halda um stjórntauminn,
en ég geri mér grein fyrir því að ég er góður
stjórnandi og tek stjórnina fúslega að mér.
Ég þoli ekki þegar einhver reynir að stjórna mér
og neita því að láta ráðskast með mig.
Ég er ekki hræddur við að segja hug minn til þess
að hreinsa andrúmsloftið.
Stjórnandinn
Átturnareru heiðarlegar, duglegar og fljót-
ar að afgreiða hlutina. Þær þola ekki yfir-
læti eða fólk sem þykist vera yfir aðra haf-
iðog forðast samskipti við þannigfólk, jafn-
vel þótt það geti komið sér illa. Sumar átt-
ur eru bölvaðar frekjur og aðrar eru snill-
ingar í því að ráðskast með fólk en þær
bera alltaf virðingu fyrir þeim sem þora að
standa uppi í hárinu á þeim. Áttur eru
óhræddar við að vernda lítilmagnann
og margar áttur taka þátt í baráttu gegn
óréttlæti. Áttureru sterkir persónuleik-,1
ar en gera sér ekki alltaf grein fyrir'
því hvenær þær fara yfir strikið.
Átturnar þurfa að læra að dæma fólk
ekki um of og viðurkenna þegar þær hafa
fólk fyrir rangri sök.
Þú getur hjálpað áttunum með því að
segja hug þinn þegar þær særa þig og gera
lítið úr þér. Stundum getur verið erfitt að
fá þærtil þessaðskilja þitt sjón-
armið en það er betra að
eyða tíma í það held-
ur en
burtu.
ganga
Erlu sáttasemjarí?
Ég skil ekki hvernig fólk nennir að æsa sig
yfir smámunum.
Ég stend mig oft að því að vera farin(n) að hugsa
um eitthvað allt annað þegar fólk er að tala
við mig.
Ef eitthvað hefur komið mér úr jafnvægi hugsa
ég gjarnan sem svo: Eftir tíu ár skiptir þetta
engu máli.
Ég er þægileg(ur) í umgengni.
Ég er næm(ur) á líðan annarra og breyti oft
fyrirætlunum mínum svo þeim geti liðið betur.
Ég stæri mig af því að halda yfirleitt ró minni.
Sjálfselska er ekki eitt af mínum vandamálum.
Ég er oft fengin(n) til þess að leysa úr erfiðum
og viðkvæmum málum.
Mér hættir til þess að velja auðveldustu
leiðina.
Ég flý hluti sem ég nenni ekki að eiga við með
því að horfa á sjónvarp, hitta fólk og fleira í
þeim dúr.
Sáttasemjarinn
Níureru vingjarn
legar og rólegar
og hafa róandi
áhrif á þá sem
í kringum þær
eru.
Það
að til
þeirra til
þess að sætta
þá sem deila. Að
þeirra mati er fátt í tilver-
unni sem skiptir miklu máli og þess vegna
virðast sumar níur latar. Aðrar kunna
kúnstina að láta líta svo út sem þær hafi
alltaf mjög mikið að gera, en í raun og veru
æða þær úr einu í annað í stað þess að vinna
skipulega að því sem þær ættu að
vera að gera.
Níurnar eiga auðvelt með að
missa sjónar á því sem er þeim
mikilvægt og gera margt í
fljótfærni án þess að velta fyr-
ir sér afleiðingunum. Þær
kunna best við gamla vini og
gamla siði og eiga það til að skríða
inn í skel sína.
Níurnar verða að læra að oft sé betra að
setja sjálfan sig i forgangsröð og hætta að
byrgja tilfinningarnar inni.
Þú getur hjálpað níunum með því að
benda þeim á það sem raunverulega skipt-
ir máli.