Menntamál - 01.03.1935, Blaðsíða 36
34
MENNTAMÁK
óbeint búa nemendur undir inntökusamkeppnina. ÞaÖ hefir auÖ-
vita'Ö mikil áhrif á starfsemi æÖri skólanna sjálfra, hvernig
valiÖ tekst, og loks getur það haft óútreiknanlega þýÖingu fyrir
menningu og embættisrekstur þjóðarinnar.
Það ætti öllum að vera auðskilið mál, hvílikt gildi það hefir
fyrir þjóðlífið, að gáfuðustu og mikilhæfustu sonum og dætr-
um þjóðarinnar gefist kostur á að njóta beztu menntunarskil-
yrða. En menntaskólanámið veitir ekki einungis aðgang að
æðstu menntastofnun vorri, heldur einnig að öllum háskólastofn-
unum annara þjóða. Þjóðin ver árlega stórfé til þessara stofn-
ana, menntaskólanna og háskólans, svo og til að styrkja stúdenta
til náms erlendis. Og um það ]jarf ekki að efast, að allur al-
menningur myndi af fúsara geði láta fé þetta af höndum, og
þótt meira væri, ef fullkomin trygging vœri fyrir því, að allir
gáfuðustu æskumenn þjóðarinnnar nytu f'yrir það beztu mennt-
unarskilyrða, sem nútíminn getur veitt.
Um áhrifin á barnafræðsluna er það fyrst að segja, að eins
og inntökuprófum i menntaskólann í Reykjavík hefir verið hag-
að til þessa, ])á hafa þau tvímælalaust gert l)arnaskólum l)æjar-
ins allmikið ógagn og munu gcra því mcir scm tímar líða, ef
þcim verður haldið í sviþuðu horfi. Astæðurnar til þess eru
i stuttu máli þær, að til prófsins hefir verið heimtað mjög mikið
af gersamlega óhagnýtum fróðleiksmolum og utangarnalærdómi,
ásamt óeðlilegri ítroðningskunnáttu í dönsku. En nú óskar fjöldi
foreldra eftir því, að koma börnum sínum í menntaskóla, ef þess
er kostur. Afleiðingin verður því sú, að barnaskólarnir eru
neyddir til að leggja óheppilega mikla áherzla á þau námsatriði,
sem heimtuð eru til inntökuprófs á kostnað annara, hagnýtari
og vænlegri til ]moska. Þá má og fullyrða, að mörgum börnum
er svo ofþjakað við undirbúning prófsins, að heilsu þeirra get-
ur verið hætta búin af því.
Eg hefi ekki í höndum nægileg gögn til þess að leggja
fullnaðardóm á það, hvernig próf þessi hafa reynzt til þess
að velja úr hina hæfustu nemendur, en af ýmsu virðist mega
ráða, að árangurinn hafi ekki verið sem beztur. Engum mun