Menntamál - 01.03.1935, Blaðsíða 43
MENNTAMÁL
41
Nytt kennslutækl.
Upphleypt líkan af íslandi.
I mörgum skólum erlendis gefur að líta upphleypt
líkan af viðkomandi landi eða landshluta. Allvíða nær
líkanið aðeins yfir þá sveit eða hérað, sem skólinn er i,
og nærsveitirnar. Þessi líkön eru mjög mikið notuð við
byrjunarkennslu i landafræði og eru prýðilega vel til
þess fallin að skýra landabréfin og gefa nemöndum
ljósa hugmynd um það, hvað þau eiga að sýna.
Likan það, er hér um ræðir, er gert úr steinsteypu.
í miðja plötuna er sett 8 mm járnnet til styrktar, svo
að líkanið er nær því óbrotliætt. Platan er 112 cm löng,
76 cm breið og 4 cm þykk. Þyngd líkansins er ca. 62,5
kg. 1 efri brún plötunnar ervi 2 sterkir lvrókar, til þess
að liægt sé að festa líkanið upp i vegg, ef vill.
Ofan á plötuna kemur svo upphleypt mynd af land-
inu. Flatarmælikvarðinn er 1:500000 (sami og á íslands-
korti S. í. B.), en hæðarhlutföllin 1:50000. Axel Helga-
son smiður í Reykjavík hefir gert líkan þetta í sam-
ráði við ýmsa kennara, þar á meðal Pálma Hannes-
son, rektor. Freymóður Jóhannsson listmálari hefir
málað það með vatnslitum. Verður ekki betur séð, en
hvort tveggja hafi tekizt prýðilega, gerð líkansins og
málning.
Fræðslumálastjórnin hefir veitt nokkurn styrk til
þess að láta gera mót úr aluminium, til þess að hægt
yrði að fá margar og góðar afsteypur af likani þessu.
Æskilegt væri, að allir fastir skólar ættu upphleypt
líkan af fslandi, til notkunar við kennslu. Mun óhætt
að fullyrða, að margt geti orðið skýrara og skiljanlegra
fyrir nemendum, ef þeir þefðu líkanið fyrir framan
sig, heldur en orðið getur með lýsingum á korti.
H. El.