Menntamál - 01.03.1935, Blaðsíða 70
68
MENNTAMÁI,
íslenzkar skólasöngbækur. Langt er nú síðan Jónasar-
heftin komu út, en svo hafa veriö nefndar söngkennslubækur
þær, sem Jónas heitinn Helgason dómkirkjuorganisti í Reykja-
vík gaf út. Fyrir þann tíma mun hafa veriS fátt um íslenzkar
bækur, sem hefðu getað oröiö skólasöngnum aS liSi. Þó er
rétt að geta um Leiðarvísi til þekkingar á sönglistinni. eftir
Pétur GuSjónsson, gefinn út í Reykjavík 1870. Jónasar-heftin
hafa því eflaust komiS sér vel. En þar sem hér var þá svo
aS segja um óplægSan akur aS ræSa á þessu sviSi, getur þaS
hafa gefiS þeim aukiS gildi. Þó hafa þau sjálfsagt ekki veriS
gallalaus fremur en önnur mannanna verk. En ]iað hygg eg, að
áhrifanna frá þeim gæti enn, og sýnir þaS aS þau hafa veriS
vel úr garSi gerS. Jónas gaf út söngfræSi, einrödduS lög,
ætluS til þess aS æfa eftir nótnalestur — söng eftir nót-
um — 0g svo þrí- og fjórrödduS lög. Hér er því greinilega
um kerfisbundna útgáfustarfsemi aS ræSa.
ÞaS helzta, sem út hefir komiS af skólasöngbókum síSan
eru Skólasöngvar Sigfúsar Einarssonar og Skólasöngbókin,
sem Pétur Lárusson gaf út.
Skólasöngvar S. E. eru þrjú hefti meS einni, tveimur og
þremur röddum, og auk þess Almenn söngfræSi. ÞaS eru
prýðilegar hækur. Raddsetningarnar eru ágætar. heftin hæfi-
lega stór, og meS söngfræSinni er gjört ráS fyrir, aS leggja
þurfi fyrst þann grundvöll, sem nemandinn geti sjálfur byggt
ofan á. — FriSrik Bjarnason hefir síSan séS um útgáfu á
fjórSa hefti af Skólasöngvum. ÞaS er þríraddaS og er svipað
aS segja um þaS og hin heftin, nema þaS er fullt af prent-
villum, og af þeim hefir náttúrlega ekki nokkur maður not.
Skólasöngbók P. L. er í tveim hefturn og hefir Pétur safnað
til hennar ásamt S. E. og Fr. Bj. ÞaS er ágætt safn af þrí-
rödduSum lögum, aS vísu eru sum lögin of há, en aS öSru
leyti er ekkert út á þaS aS setja.
Fleiri bækur hafa komiS út. Svanurinn, gott safn af ein-
rödduðum lögum kom út í Rvík 1906. Elín og Jón Laxdal
gáfu út Barnasöngva, en frú Halldóra Bjarnadóttir hefir gefiS