Menntamál - 01.03.1935, Blaðsíða 62
60
MENNTAMÁI,
ur kl. 12—I. Kennsla kl. I—3^2. Að kennslu lokinni fá börn-
in mjólk og brauð. Því næst er fri til kl. 5J4. Börnin eru þá
undantekningarlaust úti, ef ve'ður leyfir. Kl. 5%—7 er unnið
að bóklegu námi. Kl. 7—8 kvöldverður. Þá kvöldvaka og sið-
an háttað og slökkt ljós kl. 10. — Yngri deild hefir styttri
vinnutíma og lengri svefntíma en hér greinir.
Heimilisfólkið. Áður en lengra er farið, þykir mér rétt að
geta þess, að heimilisfólkið hér hefir verið frá 16—26 að tölu,
vitanlega flest börn. Fullorðna fólkið venjulega þrennt: Við
hjónin og ráðskona skólans. Stundum vinnustúlka að auki.
Auk skólabarna eru 4 börn okkar hjóna, frá 5—n ára að
aldri. Yngsta barnið er fætt hér, svo að börnin hérna hafa
sannarlega verið á öllum aldri, heimilið því reglulegt barna-
heimili, enda verður vitanlega að miða alla starfshætti fyrst og
fremst við börnin. Þessi nýju sveitaheimili, heimavistarskól-
arnir, geta þvi aldrei orðið eins og gömlu góðu sveitaheimiliú,
sem öldum saman báru uppi menningu íslendinga, en þau geta
ei að síður tekið að sér nokkuð af hlutverki hinna.
Kennslan. Kennslunni er hagað eins og venjulegt er í heim-
angönguskólum, því að oftast nær sækja skólann 1—2 börn,
sem eiga heima svo nærri, að þau eru ekki í heimavist. Nokk-
ur börn ganga heim til sín fyrripart vetrar og á útmánuðum,
ef tíð er góð, en eru í heimavist miðbik vetrar. — Auk venju-
legra námsgreina, hefi eg einnig kennt leikfimi, teikningu, söng
og piltum ýmis konar handavinnu, en konan mín hefir kennt
stúlkunum handavinnu. En bóklegu námsgreinarnar hafa tekið
svo langan tíma, að oflítill tími hefir orðið eftir handa auka-
námsgreinunum. Ættu þær þó ekki að sitja á hakanum, sízt í
sveitaskólum. Mér finnst handavinna vera nauðsynleg náms-
grein í heimavistarskólum. Það er ekkert vit í, að ætla börnunum
bóklegt nám eingöngu. Mín reynsla er, að lítið gagn sé t. d.
að því, að segja börnunum að koma með eitthvað, til þess að
vinna að á kvöldin. Þau gera það ekki öll. Eg reyndi það
fyrsta veturinn hérna, en síðan eg fór að hafa reglulega kennslu-
tíma í þeirri grein, gengur allt vel. Finn eg þó mjög til þess,