Menntamál - 01.03.1935, Blaðsíða 41
MENNTAMÁL
39
Öll þessi próf yrÖu samin af sérfræðingum og væri eðli-
legast, að það heyrði undir háskóladeild i uppeldisvísindum,
sem efalítið mun verða stofnuð hér innan skamms, samkvæmt
heimild í gildandi 1. um byggingu háskóla. Út um land myndu
námsstjórar eða skólastjórar halda prófið, en allar úrlausnir
sendar óleiðréttar til þeirra, sem prófin hafa samið.
3) Þegar unnið hefir verið úr prófinu, skal enn á ný leit-
að til kennara hinna einstöku nemenda, a. m. k. um alla
þá, sem vafi getur leikið á. Skal send.a kennurunum og
jafnvel foreldrunum eða öðrum, sem sérstaklega má œtla
að þekki nemandann vcl, sálfrœðilegar fýrirspurnir, samd-
ar af sérfrœðingum, og á hverjum, er sltkar fyrirspurnir
fœr, að vera skylt að svara þeim sem réttast, að viðlögð-
um drengskap. Loks gæti komið til mála, að prófa þyrfti
aftur einhverja, sem ekki yrði fullkomlega gert upp á
milli á annan hátt.
Eg hefi ekki rúm til að rökstyðja þessar tillögur ýtarlega,
en vil geta þess, að hvorki þekkingarpróf né gáfnapróf, hvor
í sínu lagi, virðist geta orðið áreiðanlegur mælikvarði í þeim
tilgangi, sem hér um ræðir, en hvorttveggja saman reynast
þau stórum áreiðanlegri. Hinsvegar verða sennilega engin próf,
hversu fullkomin sem þau kunna að verða, nokkru sinni ein-
hlít út af fyrir sig, og mun því í mörgum tilfellum verða
bráðnauðsynlegt, að hafa til hliðsjónar upplýsingar þær, sem
gert er ráð fyrir í 3. lið tillögurmar.
Að endingu vil eg benda á það, að það er ekki nægilegt,
þótt hœgt sé að velja úr hina hœfustu til háskólanáms, það
þarf um leið að vera hægt að gera þeim kleift, jafnt þeim fá-
tœku scm ríku, hvar scm þeir eru á landinu, að stunda námið.
Þyrfti því að mynda öfluga sjóði eða leggja fram allverulega
fjárhæð árlcga úr ríkissjóði í þcssu skyni. Til þess að gera
þetta auðveldara í framkvæmd fyrir nemendur utan af landi,
mætti hugsa sér að taka þá, sem að fengnum upplýsingum geta
talizt líklegir til að hafa afburða-hæfileika, próflaust til reynzlu
t. d. í 3ja bekk menntaskólans.