Menntamál - 01.08.1942, Page 13
MENNTAMÁt
3
F
Ayarp tll norskra kennara
(Skrautritað og bundiö í skinn, afhent sendiherra
NorÖmanna).
„Norska pjóðin, bróöurþjóð vor íslendinga, ein
drengilegasta menningarþjóð heims er nú beygö
með ofurefli miskunnarlauss vopnavalds undir kúg-
unarhœl erlendrar yfirdrottnunar. Frjálsri hugsun,
þjóðrœkni og þjóölegri menningu er ógnað, djarf-
huga foringjar þjóöarinnar fangelsaðir, píndir og
líflátnir, og börnin, viökvœm framtíð þjóöarinnar
gerö aö bráö lœvíss og harðvítugs áróðurs er-
lendrar valdastefnu.
Vér íslenzkir kennarar, höfum fylgt meö athygli
og óskiptri samúö atburöum þeim, sem duniö hafa
yfir bróöurþjóð vora. Vér höfum sett oss í spor
norskra kennara er þeir lieyja örlagaríka baráttu
um norskar sálir, um sjálft fjöregg þjóðar sinnar.
Vér dáumst að þrautseigju þeirra og fórnarlund.
Og um leið og vér sendum kennarastétt Noregs
bróöurkveðju vora og hugheilar blessanaóskir um
ávaxtaríkt starf, biðjum vér þess af hjarta að Nor-
egur veröi fljótt aftur frjálst land og norska þjóðin
komi aftur heil og skír úr eldi þeirra óskaplegu
þjáninga, sem yfir hana hafa dunið nú um sinn.
Reykjavík, 17. maí 1942.
í stjórn Sambands íslenzkra barnakennara.
Sigurður Thorlacius. Aöalsteinn Sigmundsson.
Arngrímur Kristjánsson. Gunnar M. Magnúss.
Guðjón Guöjónsson. Bjarni M. Jónsson.
Pálmi Jósefsson.“