Menntamál - 01.08.1942, Blaðsíða 17
MENNTAMÁL
7
breyting gerð á skipun skólans, að honum var breytt í
sjálfseignarstofnun og heitir hann framvegis Handíða- og
myndlistarskólinn. Eignir stofnunarinnar eru: Húseignin
á Grundarstíg 2 A í Reykjavík, og húsbúnaður og kennslu-
tæki þau, er áður voru í Handíðaskólanum. Stjórn hinnar
nýju stofnunar er þannig skipuð: Formaður Ingimar
Jónsson skólastjóri, ritari Sigurður Thorlacius, skólastjóri,
gjaldkeri Halldór Kjartansson, forstjóri. Lúðvíg Guð-
mundsson er ráðinn forstöðumaður skólans, en Kurt Zier,
listmálari, fyrsti kennari.
Kurt Zier er þýzkur maður, sem kom hingað til lands
árið 1939 að tilhlutun
Lúðvígs, til þess starfa
við Handíðaskólann. K. Z.
hefir því verið aðalstoð
og stytta skólastjórans í
allri starfseminni hingað
til. Kurt Zier er mjög
fjölhæfur listamaður og
ágætur teikni- og hand-
iðakennari.
Nokkru áður en hann
kom hingað til lands, var
hann starfsmaður Al-
þjóðaskólans (École In-
ternational í Genf við
skipulagningu kennslu í
verklegum greinum og
listnámi.
Starfsemi skólans hefur verið hagað sem hér segir:
I. Kennaradeildin.
Kennaradeildin veitir þeim, sem hafa í hyggju að gerast
teikni- og handíðakennarar í barna- og unglingaskólum,
eins til þriggja ára sérmenntun.