Menntamál - 01.08.1942, Síða 23
MENNTAMÁL
13
4. Að leiðtaeina kennurum, skólanefndum og aðstandend-
um taarna um réttindi þeirra og skyldur um allt það, er
verða mætti börnunum til aukins manngildis og taætts
árangurs af skóladvölinni.
5. Að athuga og gera tillögur um sameining skólahverfa,
samstarf smærri skóla og vinna að gagnkvæmum breyt-
ingum á skipun og framkvæmd skólahalds og menningar-
starfsemi frá sjónarmiði uppeldis, fræðslu og fjármála.
II.
Á fundinum skýrði hver námsstjóri fyrir sig frá því,
hvernig hann hefði hagaö störfum sínum. Á síðastliðnu
hausti var samið erindisbréf fyrir námsstjórana til þess að
hafa til hliðsjónar við eftirlitsstarfið. Enda þótt erindis-
taréfið hafi verið lagt til grundvallar hjá öllum námsstjór-
um, þá varð framkvæmd starfsins nokkuð sitt með hverju
móti hjá þeim. Olli þar um nokkuð, hvað tími sumra þeirra
var naurnur, svo og staðhættir, stærð eftrilitssvæðanna o.
fl. Hver námsstjóri var sem næst 3—4 mánuði á ferðalagi.
Þar sem hér var að mestu leyti um nýtt starf að ræða,
þá má telja, að ferðir námsstjóranna hafi að þessu sinni
verið meir „könnunarflug“ en raunveruleg námsstjórn. Þó
munu þeir hafa þótt aufúsugestir, því að nærri alstaðar
var þeim frátaærilega vel tekið og mjög víða var viðkvæðið
bæði hjá skólanefndum og kennurum eitthvað á þessa
leið: „Þetta var bara allt of stuttur tími, komdu fljótt aftur
og vertu þá lengur". Þá kom það og eigi sjaldan fyrir, að
fólk lét liggja boð fyrir námsstjóranum um að finna sig
til skrafs og ráðagerða.
III.
Við samræður námsstjóranna við kennara, skólanefnd-
ir o ,fl. má fullyrða, að skilningur og áhugi hlutaðeigenda
fyrir endurbótum á sviði fræðslumálanna hafi aukizt.
Bókhald skólanna reyndist misjafnt, á nokkrum stöðum