Menntamál - 01.08.1942, Blaðsíða 26
16
MENNXAMÁL
föstum skólum — með svonefndum umferðaeldhúsum, þar
sem matreiðslukennslukona færi milli skólanna með þau
áhöld, sem með þarf til kennslunnar.
X.
Heilbrigðiseftirlit í barnaskólum er ekki í svo góðu lagi
sem skyldi. Var því samþykkt áskorun til Alþingis um að
samþykkja frumvarp það til laga um skóla- og íþrótta-
lækni, sem flutt var á síðasta Alþingi að tilhlutun land-
læknis.
XI.
Kennarar voru yfirleitt mjög ánægðir með komu náms-
stjóranna. Fannst þeim víst flestum dvöl þeirra of stutt
á hverjum stað. Umræður og leiðbeiningar námsstjóranna
um kennslu og skólastarf, viðurkenning þeirra um það,
sem vel var gert, og hvatningar og uppörvun, þar sem það
átti við, hafa þegar haft góð áhrif.
Að lokum var rætt um framkvæmd kennslueftirlitsins á
næsta vetri. Má telja víst, að þar sem námsstjórarnir hafa
borið saman ráð sin eftir þá reynslu, sem þegar er fengin
og ráðgast um tilhögun starfsins, þá megi vænta enn betri
árangurs af starfi þeirra framvegis.