Menntamál - 01.08.1942, Síða 31

Menntamál - 01.08.1942, Síða 31
MENNTAMAL 21 bera blak af okkur barnakennurunum, þó að þess væri full þörf. Við erum því svo vanir, „að hnútur fljúgi um borð,“ að við tökum því oftast með þögninni, og sendum hnútuna sjaldan til baka, enda þótt við værum nú oft og einatt menn til þess. — En það voru dómarnir um börnin, sem ég vildi gera að umtalsefni. Ég hlýddi fyrir nokkru á útvarpserindi, sem oftar. Fyrir- lesarinn, sem var kona, talaði um ástandið svokallaða og einhver bjargráð við því. Hún minntist á börnin og gat um þann sorglega sannleika, að hvergi í menningarlönd- um heims væri jafn illa siðuð og vanrækt börn og hér í Reykjavík, — og sjálf virtist hún vera þessu samþykk, — nema þá í skuggahverfum stórborganna. Ég veit, að kona þessi hefir ferðast allmikið, og líklega séð London, París og Berlín í allri sinni dýrð, og er mikið til þess að hugsa, ef ofangreind ummæli um íslenzku börn- in væru rétt. En ekki virðist nú árangurinn af hinni miklu menn- ingu sumra stórþjóðanna að öllu leyti góður, þó að þeir standi okkur íslendingum náttúrlega svo miklu framar um ótal margt, það sýnir hin blóðuga styrjöld, sem nú geysar í heiminum. Og erfitt á ég fyrir mitt leyti að sætta mig við, að allt, sem aflaga fer í sambúð okkar íslendinga og setuliðsins, sé eingöngu siðleysi landa minna að kenna. Þá var í þessu útvarpserindi einnig minnzt á það, að engin samvinna ætti sér stað milli skóla og heimila hér í höfuðstaönum. Samvinnan er sjálfsagt allt of lítil. En veit þessi kona, sem erindið flutti, nokkurn skapaðan hlut um þetta? Veit hún t. d. nokkuð um þær tilraunir, sem kennarar gera til þess að ná sambandi við heimilin t. d. með Foreldrablaðinu, er þeir hafa gefið út undanfarna vetur á eigin kostnað og sent ókeypis heim á hvert einasta heimili skólaskyldra barna? Þar hafa þeir rætt um ýmis- legt varðandi skólavist og uppeldi barna og óskað eftir liðsinni og samvinnu heimilanna. Og það verð ég að segja

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.