Menntamál - 01.08.1942, Síða 35

Menntamál - 01.08.1942, Síða 35
MENNTAMÁL 25 Svona mætti lengi telja. Það mætti áreiðanlega rita langa bók og tína saman allskonar rangar tilvitnanir, af- bakanir, mismæli og meinlokur, og allt saman hjá full- orðnum, þroskuðum og stundum hálærðum mönnum. Mér er minnisstætt frá unglingsárum mínum, þegar engum minna manni en norrænugarpinum og ritsnillingn- um, Jóni heitnum Ólafssyni ritstjóra, varð það á í riti, að tala um að kona hefði kvænzt. Jóni var bent á þetta, og hann þóttist ekki ofgóður til þess að biðja afsökunar á prenti. Hann gat ekki skilið, hvernig sér hefði getað orðið þessi skyssa á. Ég man, að hann talaði um meinloku, og að mig minnir ófullkomleika mannanna. Og það er einmitt mergurinn málsins. Mannkindin er svo langt frá því að vera fullkomin. Okkur getur öllum yfirsézt og orðið á, rangminnt og misminnt, og það jafnvel þeim spökustu og lærðustu, og hvernig í ósköpunum dettur fólki þá í hug, að hálfþroskuð börn séu fullkomin og heimtar oft og ein- att miklu meira af þeim en fullorðnum mönnum? Og alveg hiö sama verður uppi á teningnum, þegar litið er á framferði barnanna, eða hið svonefnda siðferði. Er siðferði og framferði fullorðna fólksins kannske svo miklu betra? Lærir fullorðna fólkið ef til vill ljótan munn- söfnuð af börnunum? Eru það börnin, sem drekka brenni- vín og láta það flæða yfir landið — en til drykkjuskaparins álít ég fyrir mitt leyti að rekja megi mikið af þeirri marg- umtöluðu siðspillingu æskulýðsins. Fyrir nokkuð mörgum árum kom hér upp í höfuðstaðn- um illræmt hneykslismál, eins og reyndar oftar. Það var aldraður maður og sjálfur faðir, sem náð hafði á vald sitt nokkrum 12—13 ára gömlum stúlkubörnum. Hafði hann, eins og oft mun eiga sér stað í slíkum tilfellum, narrað þær í fyrstu með því að gefa þeim sælgæti. Þetta geröist að sumarlagi. Um veturinn komst það upp, að málið var tekiö fyrir.

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.