Menntamál - 01.08.1942, Síða 37

Menntamál - 01.08.1942, Síða 37
MENNTAMAL 27 andi menn í höfuðstaðnum vita það, að skilyrðin fyrir börnin hafa ekki skapast jafn ört og bærinn hefur vaxið. En við megum ekki kenna börnunum um það, þótt þau alist upp við ill og ófullkomin skilyrði. Þau eru að mínu áliti jafnvel talsvert betri en við mætti búast. Flest þeirra hygg ég að séu í rauninni beztu börn, eins og Reykvík- ingar eru yfirleitt bezta fólk. Börnin hér i Reykjavik hafa alla kosti og galla Reykvíkingsins. Þau eru hjálpfús og greiðvikin, glaðlynd og fjörmikil, talsvert táp í þeim mörg- um, langflest eru þau allra mestu mannsefni. Þau fara stundum í snjókast á götunum, það er satt, og henda jafnvel í fólk, en þau vantar líka leikvelli. Þau eru oft hortug í tilsvörum og þeim hleypur fljótt kapp í kinn, ef þau verða fyrir ónotum og taka þá stundum duglega upp í sig, rétt eins og þegar fullorðna fólkið rífst t. d. um pólitík, þar til annar aðili ber í borðið, ákallaf þann neðsta og rýkur máske á dyr. Slíkt er ekki prúðmannlegt, en þetta gerir fullorðna fólkið! Og svo er náttúrlega tals- vert af börnum, sem snemma lenda út á glapstigu, oftast af því að þau alast upp á spilltum drykkjumannaheimil- um, eða þaðan af verra, og barnavernd bæjarins ekki nægileg, enda skammt síðan hún var sett á laggirnar, og hygg ég þó að hún hafi mikið gagn gert og bætt úr brýnni þörf, og mörg börn eru ósköp fáfróð, þar sem heimilin skeyta lítið um þau, og skólatíminn allt of skammur til þess að bæta það upp. En það er vita gagnslaust að deila á börnin og dæma þau fyrir allt þetta. Vel veit ég, að Reykvíkingar, margir hverjir, hafa fullan vilja á að bæta uppeldisskilyrði fyrir börnin og talsvert hefur verið starfað í þeim tilgangi á síðari árum. Reyk- víkingar hafa þá stundum sýnt það vissa daga ársins, t. d. á sumardaginn fyrsta, að þeir eru fúsir til að opna pyngju sína til hjálpar börnunum. Þann dag og marga aðra daga, er fjársöfnun fer fram, bera Reykvíkingar vissulega á sér aðalsmark Brands hins örva.

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.