Menntamál - 01.08.1942, Side 39

Menntamál - 01.08.1942, Side 39
MENNTAMÁL 29 hverfum stórborganna, þá erum við öll ein stór glæpa- manna fjölskylda, því að börnin eru aðeins spegilmynd af þjóðfélaginu. En því fer víðs fjarri, að mér detti neitt þvílíkt í hug. Ég hefi haft mikið saman við börn að sælda um langt árabil, bæði hér í höfuðstaðnum, og einnig haft talsvert samband við börn í öllum landsfjórðungum, og ég hefi sjaldan, líklega aldrei, kynnst barni, sem ég vildi segja um, að væri reglulega vont barn. Síðan ég hóf að skrifa þessar hugleiðingar, kom fyrir mig dálítið atvik, sem ég get ekki stillt mig um að segja frá, og vil ljúka með því máli mínu. Mér finnst það koma til mín eins og svar, eða eins og framrétt hönd frá börn- unum, af því að ég væri að reyna að taka málstað þeirra. Ég mætti ungum, mannvænlegum pilti skammt frá húsinu mínu. Hann sagði, að sig hefði lengi langað að koma til mín, og andlit hans ljómaði af gleði, og hann tók fast og innilega í hönd mér og sagðist hafa svo margs góðs að minnast. Ég hefi sjaldan glaðst jafn mikið og við þessa kveðju, og þó fann ég jafnframt til sárrar blygð- unar. Hvað hafði ég svo sem gert fyrir þennan dreng? Áreiðanlega allt of lítið. Hann hafði verið hjá mér í skóla fyrir mörgum árum, tvo vetrartíma — og hann hafði verið eitt af hinum svokölluðu vandræðabörnum. — Ég kæri mig ekkert um að segja þá sögu. Nú er hann orðinn nýt- ur maður við eina heiðarlegustu og gagnlegustu atvinnu- grein þjóðfélagsins. Og hvað hafði ég svo fyrir hann gert? Líklega gefið honum eitthvað af bókum og fleira smá- vegis,sem hann vanhagaði um — og alltaf reynt að loka ekki hjarta mínu fyrir honum, meðan ég hafði hann undir höndum, á hverju sem gekk, og alltaf gert mér far um að láta hann ekki finna annað en að ég tryði því, að ein- hverntíma myndi togna úr honum og hann verða að manni. fyrir þetta var hann að þakka. Mér virðist þetta dæmi sýna ljóslega, hve börnum er samúð mikils virði, og hve þau finna og muna, hvað að þeim snýr, og líklega ekki

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.