Menntamál - 01.08.1942, Qupperneq 40

Menntamál - 01.08.1942, Qupperneq 40
30 MENNTAMÁL síður þau, sem talin eru alls vesöl og margir örvænta um. Þetta veit ég að mjög margir vita og skilja og ýmsir auð- vitað miklu betur en ég. En hinir eru þó allt of margir, sem hættir við að gleyma því. Ég hefi í þessu erindi aðallega átt við börnin í höfuð- staönum, því að hér er ég kunnugust. En mér leikur samt nokkur grunur á, að víðar sé pottur brotinn, og að víðar hér á landi séu kveðnir upp ómildir og ranglátir dómar um börn. En þjóð, er slíkt gerir, og snýr ekki frá þeirri villu, hlýtur að vera „á vegi til grafar." En ég fyrir mitt leyti vil alls ekki trúa því um hina íslenzku þjóð. Elskum því börnin, en dæmum þau ekki og reynum að bæta úr því, sem ábótavant er, þeim til handa, og gefa þeim gott fordæmi. Þá munu þau launa okkur með því að reynast okkar kynslóð fremri. Ritstjóri „Menntamála" sá erindi þetta hjá mér og óskaði eftir að birta það í ritinu. Vildi ég ekki skorast undan því, enda þótt erindið væri samið til þess að koma fram á öðrum vettvangi. Ætlunin var að flytja það í útvarp. En útvarpsráði þótti það of ádeilukennt. Mun þó mörgum finnast, að svo oft hafi veriö sveigt að íslenzkum barna- kennurum í útvarpserindum og kastað til þeirra hnútum, að sízt væri að undra, þótt þolinmæði þeirra þryti að lokum, og þeir vildu fá að leggja orð í belg. — Þess ber að geta. að síðan grein þessi var rituð, hafa stórum aukizt vandamál, erfiðleikar og freistingar á vegi íslenzkrar æsku, eftir að nýtt stórveldi tók að sér hervernd íslands, og setulið frá tveim stórþjóðum fluttist til iandsins, Virðast ýmsir forkólfar enn líta svo á, að bezta ráðið til þess að hjálpa æsku- lýðnum séu umvandanir, reiðilestur og þrumuræður. Hafa þessháttar lestrar stundum heyrst í útvarpinu. En gleðilegt er, að nú upp á síðkastið hafa einnig heyrst raddir mætustu manna, þar sem mjög kveður við annan tón, t. d. ávarp fræðslumálastjóra á sumardag- inn fyrsta. Höf.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.