Menntamál - 01.08.1942, Síða 42
32
MENNTAMÁL
Sjúkrasamlags Reykjavíkur. Samband ísl. barnakennara.
Félag gagnfræöiskólakennara. Félag ísl. símamanna. Félag
Menntaskólakennara. Póstmannafélag íslands. Prestafélag
íslands. Félag starfmanna Háskóla íslands.
Innan þessara félaga munu vera 1800 manns, svo a'ð
Bandalagið eru sterkustu samtök í landinu, að verklýðs-
samtökunum undanskildum. Að vísu eru ennþá starfs-
mannahópar utan sambandsins, sem þó ætti að vera þar,
en líklegt má telja, að ekki verði þess langt að bíða, að
allir launþegar ríkis og bæja sameinist innan Bandalags-
ins innan skamms.
Bandalagið hefur nú þegar unnið ósleitilega að stefnu-
málunum og má fullyrða, að árangurinn af starfi þess er
mikill og góður og hefði alls ekki náðst, ef hver hefði
potað fyrir sig, samtakalaust, eins og oft hefur brunnið
við áður. Bandalagið vann einkum að því á þessum vetri,
að undirbúa og koma fram á Alþingi lagaákvæðum varð-
andi hag launaþega. Fyrir atbeina þess var samþykkt
frumvarp til laga um verðlagsuppbót á laun embættis-
manna ríkisins og ríkisstofnana. En þessi eru aðalákvæði
frumvarpsins:
Greiða skal verðlagsuppbætur á laun embættismanna
og annarra starfsmanna ríkis og ríkisstofnana og á eftir-
laun og styrktarfé samkvæmt 18. gr. fjárlaga úr ríkis-
sjóði, samkvæmt fyrirmælum þessara laga.
Heimilt er lífeyrissjóðum embættismanna, barnakenn-
ara og ljósmæðra að greiða verðlagsuppbót á lífeyri á sama
hátt. Ríkissjóður endurgreiðir lífeyrissjóðunum upphæðir
þær, er þeir greiða samkv. ákvæðum þessum.
Ríkisstjórninni heimilast enn fremur að greiða sérstaka
uppbót til þeirra embættis- og starfsmanna, sem hafa
undir 650 kr. grunnkaup á mánuði og hafa börn innan 14
ára aldurs á framfæri sínu. Uppbót þessi nemi kr. 300,00
án verðlagsuppbótar fyrir hvert barn á ári og greiöist
eftir á missirislega, þó þannig, að samanlögð grunnlaun