Menntamál - 01.08.1942, Side 44
34
MENNTAMÁL
og semja frumvarp um breytingar á lögum nr. 51 27. júní
1921, um lífeyrissjóð embættismanna, og lögum nr. 33
s. d., um lífeyrissjóð barnakennara, og leggja það fyrir Al-
þingi á þessu ári.
Breytingarnar skulu miðaðar við eftirtalin atriði:
1. Að ellilífeyrir og ekkjulífeyrir geti á hverjum tíma
verið svo háir, að þeir nægi til sómasamlegs fram-
færis hlutaðeigandi lífeyrisþega, þegar um fullan líf-
eyri er að ræða.
2. Að örorkulífeyrir verði jafnhár ellilífeyri, ef um al-
gera örorku er að ræða, sem hefur orsakast af því
opinbera starfi, sem öryrkinn gegndi.
3. Að börnum, sem eru yngri en 16 ára við andlát for-
eldris síns, er var sjóðfélagi eða lífeyrisþegi, sé tryggð-
ur nokkur styrkur þar til þau eru fullra 16 ára.
4. Að sjóðfélögum, sem fara úr sjóðunum í lifanda lífi
og af öðrum orsökum en þeim, er veita lífeyrisrétt, sé
tryggð endurgreiðsla úr þeim, allt að því eins mikil og
iðgjaldaupphæðin nemur, sem þeir hafa greitt í sjóð-
inn, reiknuð án vaxta.
5. Að í lífeyrissjóð embættismanna verði ekki aðeins
teknir ailir þeir menn, er taka laun samkvæmt launa-
lögum, heldur og allir fastráðnir starfsmenn við
ríkisstofnanir, svo og við sjálfseignarstofnanir, sem
njóta ríkisstyrks eða ríkisábyrgðar.
6. Að iðgjöldin verði framvegis greidd að hálfu af hvor-
um aðila, launþega og launveitanda.
7. Að ríkið leggi fram þaö fé, sem þarf til að koma
breytingunni á.
Og loks má geta þess, að samþykkt var að endurskoða
alþýðutryggingalöggjöfina.
Af framanrituðu má ljóst vera, að hér hafa merkileg
spor verið stigin, strax á fyrsta starfsári Bandalagsins,
og árangurinn ágætur. Ef að líkum lætur, má gera ráð
fyrir, að næsta stóra skref Bandalagsins verði að beita