Menntamál - 01.08.1942, Síða 46
36
MENNTAMÁL
llannes J. Jlagniísson:
„Með lö «»11111 sk;il land
byggja"
Hinn frægi ameríski uppeldisfræðingur og skólafrömuð-
ur, Booker Washington, segir i endurminningum sínum
frá hefðarkonu einni, sem óafvitandi hafði mikil áhrif á
líf hans og framtíð, og var það með þeim hætti, er nú skal
greina:
Þegar Booker var umkomulaus og fátækur svertingja-
drengur, bar hann í brjósti óslökkvandi þrá til að afla sér
þekkingar og menntunar, en til þess hafði hann fáa mögu-
leika, og þó skorti hann umfram allt fé.
Um þetta leyti heyrir hann getið hefðarkonu einnar,
frú Ruffner, er greiddi verkafólki sínu hærra kaup en
allir aðrir. En það fylgdi sögunni, að engin tylldi hjá henni
nema stuttan tíma, og væri þá annað hvort rekinn eða
hlypi sjálfur úr vistinni. En, hvers vegna? Vegna þess,
að hefðarfrú þessi setti öllum verkamönnum sínum og
þjónustufólki eitt skilyrði, — skilyrði, sem því nær eng-
inn gat fullnægt til lengdar, og það var óaðfinnanleg vand-
virkni, skyldurækni og trúmennska í smáu sem stóru.
Undir þetta mikla próf gekk svo Booker litli Washing-
ton einn góðan veðurdag, og réð sig í vist hjá frú Ruffner.
Og hann stóðst þetta próf, sem reyndist honum upphaf
hinnar miklu giftu hans. Löngu síðar, þegar hann er
sjálfur orðinn forstöðumaður einnar hinnar merkustu
uppeldis- og skólastofnunar, sem Ameríkumenn hafa
eignast, lætur hann svo um mælt: „Það, sem ég lærði hjá
frú Ruffner hefur orðið mér meira virði en öll sú þekk-