Menntamál - 01.08.1942, Síða 49

Menntamál - 01.08.1942, Síða 49
MENNTAMAL 39 en að kunna allar sínar bækur utan að, þótt það sé engan veginn lítilsvert. í öllum skólum og bekkjum eru börn, sem erfitt er við að eiga, vegna allskonar óreglusemi, og eiga heimilin þar venjulega sökina, en ég ætla, að 99 af hverjum 100 börnum megi venja til reglusemi og skyldurækni í skólanum, ef nógu snemma er byrjað og skólanum og kennaranum er alvara með að boðum hans og reglum sé hlýtt. Það getur verið, að einu barni af hverju hundraði sé ekki hægt að hjálpa, en það er þá venjulega frá einhverju vandræðaheimili. En nú munu einhverjir spyrja: Hvað á að gera við börn, sem ekki gera skyldu sína? Hvernig á að venja börn af óreglusemi? Þótt ég geri þetta að umtalsefni hér til íhug- unar fyrir okkur öll, þá fer því fjarri, að ég telji mig geta kennt öðrum í því efni, enda held ég, að þarna verði tæp- ast gefin nokkur óyggjandi ráðlegging. En ég vil í þessu sambandi aðeins láta í ljósi þá skoðun, að það á aldrei að láta nokkra vanrækslu eða nokkurt brot á lögum skól- ans eða bekkjarins fara þegjandi framhjá sér. Kennarinn þarf ætíð að láta barnið, sem brotið fremur, vita, að hann hefur tekið eftir því, hin þegjandi undanlátssemi og af- skiptaleysi er fyrsta skrefið niður þá brekku, sem ef til vill verður ekki numið staðar í. En við hinu er þó jafn framt skylt að vara: Að þreyta börn þessi ekki með stöð- ugum áminningum og nöldri, og enn síður skyldi beita hörku og refsingum nema um alvarlegri brot sé að ræða. Langoftast duga þarna vingjarnlegar bendingar, samtal við foreldrana eða fáeinar línur til þeirra. En þegar svo líður heill vetur eða jafnvel mörg skólaár, án þess að úr þessu rætist, þá er annað tveggja: Barnið, og heimili þess, er óvenjulega slæmt, eða skólinn hefur ekki gert skyldu sína í þessu efni. Það virðist í fljótu bragði ákaflega réttmæt refsing, að láta barn, sem vanrækir að læra, sitja eftir, sem kallað er og læra fræði sín í skólanum eftir að hin börnin eru farin

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.