Menntamál - 01.08.1942, Page 53
MENNTAMÁL
43
Ríkið lagði fram ofurlítinn styrk árlega til utanfara
kennara, áður en stríðið hófst.
Það virðist því sanngjarnt, að það styrki kennara til
innanlands námsferða nú, af því að leiðirnar til útlanda
eru að mestu lokaðar, ekki með sömu, heldur nokkru hærri
upphæð. Kennarar myndu kunna að meta þann styrk og
ávextir sjást í lífrænna og fjölskrúðugra starfi þeirra.
€ri*ímiir Ciirímssoii
fyrrum skólastjóri í Ólafs-
firði varð sextugur 15. janú-
ar s. 1. — Grímur fékk fyrst
menntun sína á Akureyri, tók
hann þar gagnfræðapróf ár-
ið 1904 með fyrstu einkun.
Árið 1906 tók hann kennara-
próf úr Flensborg og hóf síð-
an kennslu í Ólafsfirði. Árið
1913 fór hann utan til frek-
ara náms, dvaldi í lýðháskól-
anum í Voss 1913—1914 og
feröaðist svo um sumarið um
Norðurlöndin þrjú, Danmörk,
Noreg og Svíþjóð. Kennslu
hélt hann svo áfram í Ólafs-
firði þar til árið 1934, en þá varð hann að láta af kennslu
sökum heyrnarbilunar. Grímur var einkar vinsæll í starfi
sínu og var honum sýndur ýmiss vináttu- og virðingarvott-
ur, bæði af nemendum hans og vinum.
Grímur Grímsson