Menntamál - 01.08.1942, Side 58

Menntamál - 01.08.1942, Side 58
48 MENNTAMÁL Á þessu stigi veitir Ríkisútgáfan eiginlega litla úrlausn. Þegar frá er skilin lesbókin „Ungi litli“, eftir Steingrím Arason, er algerð eyða fyrir þetta stig lestrarnámsins. Pyrsti flokkur lestrarbókanna er of þungur fyrir þessi börn. Annars er það svo um lestrarbækurnar, að þótt í þeim sé allmikið af góðu lesefni, reyndar mjög misjafnlega góðu, og enginn beri brigður á málsmekk safnandans, þá er því efni mjög fljótlega saman safnað. Það hefði verið æskilegra, að verkið hefði verið unnið af kennara, sem vanur var að kenna börnum lestur. Víða er mikil viðleitni í þá átt að hafa lesefnið fræðandi og er aldrei nema gott um það að segja. En vandfarið er með þau tvö sjónarmið í lesbókum byrjenda: að hafá lesefnið bæði fræðandi og við barna hæfi. Sárafáir kunna þeim tveim herrum að þjóna, svo að vel sé. Ég vil nú nokkrum orðum minnast á lesefni, sem að nokkru leyti getur fyllt þessa eyðu. Skal þá fyrst minnast á mínútuspjöld Snorra Sigfússonar. Mér virðist, að þeim hafi oflítill gaumur verið gefinn og því sjónarmiði, sem fylgt er við samningu þeirra. Mínútuspjöldin hafa þann mikla kost, að efni þeirra flestra er úr hugmyndaheimi barna og orðaforðinn við þeirra hæfi. Annar höfuðkostur þeirra er formið. Börnunum er ætlað að lesa spjöldin oft yfir eða þar til þau ljúka spjaldinu á einni mínútu, en við þetta festast orðmyndirnar mjög vel i minni barn- anna. Þá má ekki gleyma því, hve mjög þetta æfir góðar augnhreyfingar barna við lesturinn. En galli er það á spjöldunum, hve flausturslega er frá þeim gengið og mál þeirra jafnvel ekki ávallt nógu vandað. Þá vil ég nefna „Bernskumál“, eftir Egil Þórláksson. Sú bók ber það með sér, að hún er byggð á reynsluþekk- ingu góðs kennara. Þar hefir tekist vel að koma átthaga- fræði fyrir í skemmtilegu lesmáli fyrir börn. En þessi bók

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.