Menntamál - 01.08.1942, Page 60
50
MENNTAMÁL
börnin þekki frá einhverju „fyrra tilverustigi" kenni-
myndir sagna.
Málfræði barnaskólanna á fyrst og fremst að vera und-
irstaða réttrar notkunar alþýðunnar á hinu talaða orði.
En nú er hún helzt miðuð við það að vera byrjun æðra
náms.
Slík málfræði þyrfti að byggjast á rannsóknum á því,
í hverju hinu talaða máli almennings er mest ábótavant,
og miðast síðan við að kenna börnum það, sem kalla
mætti rök tungunnar. Það er t. d. ekki nóg að kenna börn-
um mismun fallmyndanna. Þau þurfa líka að læra merk-
ingamun fallanna.
En að semja slíka bók við barna hæfi er mikið vanda-
verk.
Ég mun nú láta staðar numið fyrst um sinn. Þótt grein
þessi sé ef til vill orðin nógu löng, er þó aðeins stiklað
á stóru punktunum.
Verið getur, að ég sendi Menntamálum síðar nokkrar
athugasemdir við aðrar námsbækur, ef ekki verða aðrir
til þess. Oss er höfuðnauðsyn að ræða um námsbækurnar
og spara ekki réttmæta gagnrýni.
Námsbækurnar eru ekki einkamál höfundanna eða út-
gáfustjórnar, heldur mál allrar þjóðarinnar.