Menntamál - 01.08.1942, Blaðsíða 62
52
MENNTAMÁL
stofnuð hér á landi, og hafa á þessu tímabili verið stofn-
aðar 116 barnastúkur, en af þeim eru nú 52 starfandi
víðsvegar um land og munu félagar þeirra samtals vera
4600. Er þetta því hinn fjölmennasti barnafélagsskapur
hér á landi.
Þótt félagsskap þessum sé einkum ætlað það hlutverk
að vinna á móti eiturnautnum barna og unglinga, og
yfirleitt reyna að koma í veg fyrir útbreiðslu þeirra, þá
er hann þó í eðli sínu alhliða uppeldisfélagsskapur, er
býr yfir miklum möguleikum til að verða ungu fólki
hollur skóli. Hins er þó eigi að dyljast, að þegar hafin
var skipuleg barátta á móti áfengisbölinu á alþjóðlegum
grundvelli með stofnun Góðtemplarareglunnar, var frum-
herjum hennar það ljóst, að meðal barnanna og ungling-
anna hlaut að bíða hennar mikið verkefni, og í gegnum
æskuna hlyti sú leið að liggja, er fæli í sér lausn þessa
mikla, alþjóðlega vandamáls. Því var unglingareglan
stofnuð tveim árum síðar.
í 55 ár hefur þessi félagsskapur starfað meðal íslenzkra
barna og unglinga, og ég er dálítið hissa á því, að hann
skuli ekki hafa verið tekinn í þjónustu hins almenna
uppeldis meir en raun ber vitni um, því að til þess er
hann vel fallinn, og þótt gagn hans á undanförnum ára-
tugum verði tæplega sannað með nokkrum tölum má þó
fullyrða, að hann hefur orðið hundruðum og þúsundum
ungra manna til blessunar. Fyrir áhrif hans hafa ótelj-
andi ungir menn orðið bindindismenn ævilangt.
En unglingareglan gerir meira en að ala ungt fólk upp
til bindindissemi. Hún er sá skóli, er veitir meiri félags-
legan þroska en flest önnur félög sem ég þekki, og síðast
en ekki sízt býr hún yfir sterkum siðrænum áhrifum.
Þótt bygging og félagsform unglingareglunnar sé mikl-
um mun einfaldara en á hinum æðri stigum Reglunnar,
er barnastúkustarfið þó svo margþætt, að það gefur ótrú-
lega mörg tækifæri til starfa og margskonar þjálfunar.