Menntamál - 01.08.1942, Síða 67
MENNTAMÁL
57
borgarinnar. Kerfið er orðið flókið og borið hefur við, að börn hafi
smogið í gegnum möskvana og hvergi komið fram til skólanáms
heilt skólaár. Starfssvið fræðslumálaskrifstofu Reykjavíkur væri
að styðja skólana í öllu starfi út á við og hafa með höndum færslu
barna milli skólahverfa, auk annars eftirlits.
Sumardvalarnefnd barna
hefur starfað í Reykjavík og fleiri bæjum í vor og sumar. Mun
starfið hafa gengið greiðlegar nú en í fyrra, en þá komu ýmsir ann-
markar og erfiðleikar í ljós, við þessa fyrstu stóru tilraun að koma
kaupstaðarbörnum í sveit.
Unglingavinna.
Síðan styrjöldin hófst, og einkum eftir hernám landsins, hefur
mjög verið seilst eftir unglingum til starfa. í Reykjavík vantar sí-
fellt sendisveina. en margir skóladrengir fara beint frá fullnaðar-
prófinu í setuliðsvinnu og fá þar hátt kaup. En öllum þeim,
sem kunnugir eru starfsbrögðum í setuliðsvinnunni, ber saman um,
að þar sé megn siðspilling í vinnuháttum. Yfirmenn, erlendir og inn-
lendir, fá goldnar prósentur af fé því, sem eytt er til vinnunnar, án
þess litið sé á afköst; þeirra hagur er því sá, að eytt sé miklu fé
í þessu skyni. Verkamenn hafa hinsvegar lélegar eða engar fyrir-
skipanir um vinnu, hálfa og heila daga, — þykjast oft vinna, en
vinna ekki, dæmi munu jafnvel til þess, að menn hafi látið skrá-
setja sig í vinnuna að morgni, en horfið síðan á brott og dvalið
tímum saman annarsstaðar, komið síðan til að láta afskrá sig að
kvöldi. Bílstjórar hafa leikið það, að hafa 24 klst. vinnu á sólarhring,
sem sagt skotist heim í vinnutímanum og sofið nokkrar klukku-
stundir, án þess að eftirlitsmenn skeyttu því hið minnsta eða veittu
því athygli. Þegar unglingar, sem í fyrsta skipti taka upp vinnu
með fullorðnum mönnum, komast í slíkt umhverfi, þar sem hátt
kaup er í boði, en hinsvegar áhugaleysi, ábyrgðarleysi og takmarks-
leysi ríkjandi, má ljóst vera, að siðferðisgrundvöllurinn undir starfi
þeirra er ótraustur eins og einnar nætur ís.
The Schoolmaster,
blað enskra kennara, birti nýlega tveggja síðu grein um ísland.
Var þar í stuttu máli rakin saga íslands, minnst á þingsöguna, og
nokkuð greint frá landslagi og þjóðháttum.