Menntamál - 01.12.1956, Blaðsíða 50
176
MENNTAMAL
unnt væri, að koma því til leiðar, að allir góðir tslend-
ingar hætti að telja íþróttir heilsusamlegar líkamsæfingar.
Guð sé með ykkur öllum!
1. október 1956.
Lárus J. Rist.
Lárust Rist kom lieim írá námi liaustið 1906 og hóf þá kennsltí við
gagnfræðaskólann á Akureyri. A hann því hálfrar aldar kennaraaf-
mæli á þessu hausti. Lárus kenncli eirikum leikfimi, bæði við gagn-
fræðaskólann og barnaskólann á Akureyri, og sund kenndi hann á
Akureyri frá 1907—22, enda einn af vakningarmönnum sundlistarinn-
ar hérlendis, svo sem alkunnugt er. Atik þess kenndi Lárus nokkuð
bóklegar greinar, m. a. landafræði, náttúrufræði og reikning.
Lárus er brennandi í andanum og vakningarmaður engu síður nú
en fyrir hálfri öld. Hann er hugsjónamaður og húmanisti.
Á þessum tímamótum ltefur Lárus ritað framanskráða grein.
Ritslj.
Frá Bindindisfélagi íslenzkra kennara.
Aðalfundur Bindindisfélags ísl. kennara var haldinn í Kennara-
skólanum miðvikudaginn 6. júní s. 1. Formaður félagsins, Hannes j.
Magnússon, flutti skýrslu um störf síðasta árs. Hafði félagið átt aðild
;ið bindindissýningunni og tekið jrátt i stofnun Landssambands gegn
áfengisbölinu. Þá efndi lél. til ritgerðarsamkepjjni um bindindismál
meðal 12 ára barna og liét verðlaunum fyrir þrjár beztu ritgerðirnar
á hverju námsstjórasvæði. Enn fremur lagði félagið til mann í rit-
stjórn barnablaðsins ÆSKAN og beitti sér fyrir útgáfu fræðslurits
um bindindismál til notkunar í barnaskólum, og kemur það út í
sumar.
Fundurinn gerði nokkrar ályktanir um framtíðarstarfið, en félag-
ið nýtur styrks frá áfengisvarnarráði til starfsemi sinnar.
Stjórn félagsins skipa: Hannes J. Magnússon, skólastjóri, Akuieyri,
Helgi Tryggvason, kennari, Reykjavík, Jóhannes Óli Sæmundsson,
námsstjóri, Akureyri, Eirikur Sigurðsson, yfirkennari, Akureyri og
Kristján Gíslason, kennari, Reykjavík.
Stjórn II. í. K.