Menntamál - 01.12.1956, Blaðsíða 81
MENNTAMÁL
207
þar sem í heild sé að finna cill lög og reglugerðir um skólahald, svo
og um skyldur og réttindi kennara.
2. Tólfti aðalfundur K. S. A. beinir því til Ríkisútgáfu námsbóka, að
hún láti sitja fyrir að gefa nú þegar út litprentaða landakortabók og
einnig handhæga stafsetningarorðabók.
3. Fundurinn felur væntanlegri sambandsstjórn að koma á sýningu
barna- og unglingabóka á næsta aðalfundi. Fundurinn telur mjög
æskilegt, að safni slíkra bóka verði komið upp hjá Ríkisútgáfu náms-
bóka.
•f. Tólfti aðalfundur K. S. A. telur jjað mjög illa farið og til mikilla
óþæginda fyrir skólana, ef Bókabúð Menningarsjóðs hættir störfum,
jrví að hún liefur reynzt kennurum mjög hjálpleg um útvegun skóla-
tækja. F'jölbreytt skólatækjaverzlun er brýn nauðsyn. Þess vegna beinir
fundurinn því til Ríkisútgáfu námsbóka, hvort hún geti ekki tekið
að sér slíka verzlun, ef hin liættir.
í sambandi við fundinn var haldin sýning á kennslubókum og
hjálparbókum fyrir kennara á Norðurlöndum.
Á laugardagskvöld skoðuðu fundarmenn hið svo til fullgerða,
glæsilega sjúkrahús, og voru móttökur Norðfirðinga allar hinar
glæsilegustu.
Stjórn sambandsins skipa nú: Steinn Stefánsson, formaður, Guð-
mundur Þórðarson, gjaldkeri, Valgeir Sigurðsson, ritari, og lil vara:
Skúli Gunnarsson og Jóhann Jónsson, allir á Seyðisfirði.
J fundarlok var setið kaffiboð bæjarstjórnar og fræðsluráðs Nes-
kaupstaðar, og var fundi slitið undir borðum.
Aðalfundur Kennarasambands Eyjafjarðar.
Aðalfundur Kennarafélags Eyjafjarðar var haldinn á Akureyri laug-
ardaginn 22. sept. s. 1. Formaður félagsins Hannes |. Magnússon, setti
fundinn. Fundarstjóri var kosinn Einar M. Þorvaldsson, en ritari
Eiríkur Sigurðsson.
Fyrst fóru fram venjuleg aðalfundarstörf, en að þeim loknum voru
flutt eftirtalin erindi, og urðu nokkrar umræður á eltir þeim:
Vetrarstarfið (Stefán Jónsson námsstjóri).
Kristindómskennsla í heimilum og skólum (Valdimar V. Snævarr
skólastjóri).
Sparifjárstarfsemi í skólurn (Snorri Sigfússon námsstjóri).
Norskir skólar (Eirikur Sigurðsson yfirkennari).
Hann sýndi einnig nokkrar norskar námsbækur og uppeldismálarit.
Ymislegt um skólamál (Þórarinn Björnsson skólameistari).
Um kennslutækni (Steingrímur Bernharðsson skólastjóri). Hann