Menntamál


Menntamál - 01.12.1956, Page 68

Menntamál - 01.12.1956, Page 68
194 MENNTAMÁL verða veigamikill þáttur skólastarfsins eftir endurskoðun skólamálanna. Enn hefur þessu lítið verið sinnt, en árið 1955 kom fram nefndarálit, sem ætti að vera hægt að leggja fyrir þingið á þessu ári. Samkvæmt því skal menntun skóla- sálfræðinga bætt, sálar- og uppeldisfræðideildir háskólanna endurskipulagðar, og ennfremur er tillaga um stofnun uppeldisfræðilegs tilraunaráðs með allrúmum fjárhag til starfs. Mikill og vaxandi skortur er á skólahúsnæði. Hin nýja námskrá gerir ráð fyrir fjölbreyttri verknámskennslu, en slík kennsla þarf mikið húsrými. Eins og annars staðar eru framlög til fræðslumála geysi- stór útgjaldaliður, bæði hjá sveit og ríki. Nokkur fjár- upphæð hefur verið veitt til að rannsaka, hvort ekki megi að skaðlausu spara þar eitthvað. Danmörk. Unnið er áfram að breytingu á skólalöggjöfinni. Mennta- málaráðherra lagði- fyrir þingið frumvarp sitt um endur- skipulagningu skólakerfisins, og samtímis komu fram 2 aðrar tillögur, Askov-frumvarpið og frumvarp vinstri flokksins. Barnaskólinn er nú 5 ár, og tekur þá við 4 ára miðskóli, sem skipt hefur verið frá 1937 í próflausan skóla og próf- skóla. Skólaskylda er 7 ár. Þetta fyrirkomulag hefur reynzt gallað. Próflausi skólinn hefur verið lítilsvirtur af foreldr- um og framkvæmd hans verið misjöfn. Mörg börn, sem byrja í prófskólanum ljúka honum ekki og fá því ekki það yfirlit yfir námið, sem lokastigið veitir. Öll frumvörpin reyna að ráða bót á þessum vandkvæð- um. Askov-frumvarpið gerir ráð fyrir 7 ára óskiptum barnaskóla og síðan 3 ára gagnfræðaskóla eða 5 ára menntaskóla. Frumvarp vinstri flokksins er um 6 ára barnaskóla en frumvarp ráðherrans er um 5 ára barna- skóla og 3 ára miðskóla í allmörgum deildum. Úr bóknáms-

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.