Menntamál - 01.12.1956, Síða 82
208
MENNTAMAL
sýndi ýniis kennslutæki til notkunar við lestrar- og reikningskennslu,
sem ekki liafa sézt hér áður. Einnig var sýndur þarna nýr danskur
skólapenni, „PenoT'-penninn, sem gerður er eftir fyrirsögn danskra
skriftarsérfræðinga. En liann fæst nú í „Penol"-umboðinu á Akureyri.
Loks flutti dr. Matthias Jónasson erindi urn erfiðleika við kennslu
vangefinna og afbrigðilegra barna og skýrði þar m. a. frá, livernig
uppeldisfræðilegar rannsóknir geta komið þar að góðu gagni.
Fundinn sóttu 45 kennarar auk gesta.
Sameiginleg kaffidrykkja var að Hótel KEA, en þar rakti Hannes
J. Magnússon sögu félagsins í fáum dráttum þessi 25 ár, er það hefur
starfað. Kennarafélag hafði starfað hér á árunum 1917—1922. En
í því voru bæði kennarar barnaskólans og þáverandi Gagnfræðaskóla, og
var Stefán skólameistari formaður þess. Það gaf út ágæta lestrarbók
á þessum árum.
Kennarafélag Eyjafjarðar var stofnað á Akureyri fyrir forgöngu
Snorra Sigfússonar 4. okt. árið 1931. Stofnendur voru 17, og eru þeir
allir á lífi, en aðeins 5 við kennslustörf enn.
Fyrstu stjórn skipuðu: Snorri Sigfússon formaður, Ingimar F.ydal
gjaldkeri og Hannes J. Magnússon ritari. Var Snorri form. félagsins,
unz hann flutti alfarinn úr bænum, eða til ársins 1954. Hannes J.
Magnússon hefur verið í stjórninni frá stofnun félagsins, fyrst sem
ritari, en síðan sem formaður.
Eélagið hefur rætt uppeldis- og skólamál á fundum sínum. Auk
þess hefur það staðið fyrir 7 kennaranámskeiðum á þessunt tíma,
þar sem fvrir hafa verið tekin hin margbreytilegustu viðfangsefni
kennslutækninnar. í sambandi við námskeiðin svo og fundina hverju
sinni hefur verið fluttur fjöldi erinda um uppeldis- og skólamál.
Þá liefur félagið liaft nokkra útgáfustarfsemi með höndum. Það
hefur gefið út tímaritið Heimili og skóln í nálega 15 ár, eða frá 1942.
Hefur Hannes J. Magnússon verið ritstjóri þess frá upphafi. Hefur það
jafnan verið höfuðtilgangur ritsins að vinna að aukinni samvinnu og
skilningi milli lieimila og skóla, en hefur ekki enn náð nægilegri út-
breiðslu.
Þá gaf félagið út vinnubók í átthagafræði 1948. Hún var seld skól-
um út um land og er nú nálega uppseld.
Þá hefur félagið komið sér upp dálitlu bókasafni, og eru í því nær
eingöngu bækur um uppeldis- og kennslufræðileg efni. Bækurnar eru
lánaðar félagsmönnum.
Stefán Jónsson námsstjóri árnaði félaginu heilla á afmælinu, og
Snorri Sigfússon rifjaði upp gamlar minningar. Ffann er nú heiðurs-
félagi Kennarafélags Eyjafjarðar. Félaginu barst heillaskeyti frá fræðslu-
málastjóra.