Menntamál - 01.08.1959, Blaðsíða 134
228
MENNTAMÁL
Ragnheiður Hrefna Benediktsdóttir.
Hér með bið ég Mennta-
mál að geyma mynd henn-
ar, því að betra er seint
en aldrei.
Ragnheiður var fædd
10. nóv 1907 og dáin 26.
nóv. 1941.
Hún var dóttir Bene-
dikts Björnssonar, skóla-
stjóra á Húsavík, og Mar-
grétar Ásmundsdóttur,
konu hans.
Á sinni stuttu kennara-
ævi varð hún sómi stéttar
sinnar, og þó gerði hæpin
heilsa henni ókleift að
beita hæfileikum sínum til
fulls.
„Ég held, að það sé
mest gaman að starfa við heimavistarskóla. Þar er hægt
að móta börnin mest,“ sagði hún eitt sinn. En henni var
vel ljóst, að til þess þurfti fyllsta starfsþrek. Og ekkert
var henni fjær skapi en að fylla sæti svo, að á skorti.
Með óbugandi hetjulund og manndómi innti hún af hönd-
um skyldustörfin, hjálpaði börnum og starfsfélögum og
var hrókur alls fagnaðar, þrátt fyrir baráttuna við ólækn-
andi sjúkdóm.
Við, sem bárum gæfu til að kynnast henni, geymum
ótal hugljúfar minningar um gjörvulegu, fjölhæfu stúlk-
una, sem spilaði og söng, starfaði og hló, þrátt fyrir allt.
Og okkur finnst, að lífið hér hefði sízt mátt missa hana.
En „þeir, sem guðirnir elska, deyja ungir“.
V. I.