Menntamál - 01.08.1959, Blaðsíða 145
MENNTAMÁL
239
Enn fremur verður norrænt kennaranámskeið haldið í Askov á
Jótlandi í sumar eins og venja er til og fjölmörg hálfsmánaðar-
námskeið, „14 dage pá höjskoie", verða haldin á lýðháskólum víðs
vegar um Danmörku á tímabilinu frá júníbyrjun til septemberloka.
Noregur.
I.—7. júli Norrænt kennaramót á Sjusjöens háfjallalióteli við Lille-
hammer.
12.—18. júlí: Norrænt æskulýðsmót á Hundorp lýðháskólanum I
Gudbrandsdal.
Svíjijóð.
17—25. júni: Námskeið um norræna samvinnu á sviði menningar-
mála, haldið á Biskops-Arnö.
18.—25. júni: Norrænt æskulýðsmót á Bohusgárden, sem er miðstöð
sumarnámskeiða sænska félagsins við vesturströndina, skammt fyrir
norðan Gautaisorg.
1. —8. júli: Norrænt námskeið, sem kallast Norðurlönd i dag, verð-
ur haldið á Boliusgárden.
4—12. júli: Norræn bókmenntavika á Biskops-Arnö.
9,—18. júlí: Norrænt námskeið, sem nefnist: Litir og form okkar
nánasta umhverfis, haldið á Bohusgárden.
23.-29. júlí: Norræn fjallanáttúra, kennaranámskeið, haldið í
Abisko i Lapplandi.
2. -8. ágúst: Norrænt kennaranámskeið, sem nefnist: Att spela
teater, haldið á Bohusgárden.
Enn fremur verða ýmiss konar kennaranámskeið haldin í sumar
á vegum sænsku fræðslumálastjórnarinnar og fleiri aðila, þar á meðal
o. m. k. 5 námskeið á Náás, skammt frá Gautaborg, fyrir handa-
vinnukennara, teiknikennara og iþróttakennara, og á Sigtuna fyrir
kennara tornæmra barna og unglinga. íslenzkum kennurum gefst
kostur á þátttöku í þessum námskeiðum. Einnig verða haldin nám-
skeið fyrir norræna kennara í Englandi í júní og júlimánuði i
sumar.
Þess má að lokum geta, að 15 danskir kennarar munu dveljast hér
á landi um þriggja vikna skeið í júlímánuði í sumar, í boði Norræna
félagsins og íslenzkra kennarasamtaka. Þá mun sumarnámskeið á veg-
um fræðslumiðstöðvar Gautaborgarstúdenta haldið hér um mánaða-
mótin júní og júlí og hafa þeir notið fyrirgreiðslu Norræna félagsins
í sambandi við undirbúning.
Nánari upplýsingar um námskeið þessi og mót gefur Magnús Gisla-
son, framkvæmdastjóri Norræna félagsins í Reykjavík.