Menntamál - 01.08.1960, Blaðsíða 75
MENNTAMÁL
169
2. Að allir skólar hafi yfir að ráða þeim tækjum, sem nauðsynleg
eru til slíkra tilrauna svo og sérstakar eðlisfræðistofur.
3. Að ekki séu fleiri en 25 nemendur í liverri bekkjardeild. Aðeins
með því móti hefur nemandinn fullt gagn af náminu.
4. Að kennarar verði aðnjótandi þeirrar menntunar, sem gerir Jteint
kleift að fræða nemendur sína sem allra bezt um sem flest fyrirbæri
Jteirrar tæknialdar, scm vér lifum á.
5. Að námsbækur barnaskólanna í þessum greinum séu sent allra
léttastar og námsefnið viðráðanlegt meðalgreindum nemanda.
Rætt var um sama atriði á ráðstefnu alþjóðasambands framhalds-
skólakennara, FIPESO, sem haldin var í París samtímis fyrrgreindri
ráðstefnn IFTA.
Á Jressn Jsingi var fjallað um kennslu eðlis- og efnafræði í fram-
haldsskólum. Ráðstefnan komst í höfuðatriðum að sömu niðurstöð-
um og segir þar m. a. svo: Fræðslu framhaldsskólanna verður að vera
Jjann veg háttað, að nemandanum sé gerð ljós hin geysiöra Jtróun
vísinda og tækni nútímans.
Vísindaleg og tæknileg fræðsla verður eftirleiðis að skipa jafnháan
sess og tungumál og sagnfræði hafa hingað til gert. Þessu hefur verið
mjög ábótavant. Við slíkt nám verður hver menntastofnun að hafa
innan sinna vébanda fullkomna tilraunastofu og verkstæði í ein-
hverri mynd.
Þeir, sem annast kennslu í þeim greinum, er hér um ræðir, verða
að hafa lokið námi við háskóla eða hliðstæðar menntastofnanir.
Þing FIPESO telur nauðsynlegt, að kennurum sé veitt leyfi frá
störfum á fullum laununt, svo að hann geti aukið við menntun sína
með sjálfstæðu námi og rannsóknum. Leyfi sem þessi skulu veitt,
Jtegar kennarinn hefur kennt um ákveðið árabil.
Skortur á sérmenntuðum kennurum í námsgreinum Jtessum er
mjög tilfinnanlegur í mörgum löndum heims. Meginorsök hans
mun vera óviðunandi launakjör kennara.
I mörgum löndum annast þessa fræðslu menn með ónóga Jtekk-
ingu og reynslu. Slíkt ber að harma.
Ákveðið var, að væntanleg ráðstefna næsta ár fjalli um nemendur í
framhaldsskólum, umhvcrfi þeirra og aðbúð utan vcggja skólanna.
Guðm. Jónasson Jrýddi og endursagði eftir
WCOTP Annual Report, Washington 1959.