Menntamál - 01.08.1960, Síða 76
170
MENNTAMÁL
Bókafregnir.
ísak Jónsson og Helgi Elíasson: Gagn og gaman, 2. hefti, 2. útg. 1959.
Ný útgáfa af öðru hefti Gagns og gamans kom út í haust. Heftið
hefur tekið töluverðum breytingum. Letrið er örlítið smærra, en þó
hæfilega stórt, línu- og orðabil minna og hæfilegra. Pappírinn er
gljáalaus og þar af leiðandi þægilegri fyrir augað. Litmyndir prýða
bókina, en ekki er vandað til prentunar á þeim. Bókin er illa lieft.
Lestrarefni er að mörgu leyti líkt eða hið sama og í eldri útgáf-
unni, en þó með þeim brcytingum, sem allar eru til mikilla bóta.
Nú cru þeir kaflar t. d. í söguformi, sem áður voru í samtalsformi,
og því viðráðanlegri fyrir hina ungu og lítt þjálfuðu lesendur. Setn-
ingar eru stuttar og góðar. Sögurnar yfirleitt ekki lengri en ein opna,
nokkrar styttri, sem er rnikill kostur, þvi úthald barnanna er oft
iítið, en löngun þeirra og þörf á að „ljúka við“ mikil. Getu barn-
anna í því efni er þess vegna ekki misboðið, og er það ómetanlegt.
Rímuðum lesköflum er að mestu leyti sleppt, í stað þeirra koma
kaflar átthagafræðilega sniðnir, um sarna efni, eins og t. d. um hest-
inn, kúna og kindina, svo að eitthvað sc nefnt, ólíkt skemmtilegri og
þægilegri aflestrar. Bókin er því að efni og formi fyrsta flokks lestrar-
bók og ágæt fyrir börn með lestrareinkunn 3.0—4.5. Ég þykist geta
sagt um þetta með nokkurri vissu, þar sem ég hef notað bókina í vet-
ur fyrir börn á þessu stigi. Ennfremur hef ég reynt að nota hana
fyrir börn með lestrareinkunn fyrir neðan þrjá, en þeirn veittist
hún erfið, þó að þau hefðu ánægju af efni hcnnar. Virðist mér því
enn vanta bók, millistig milli fyrsta og annars heftis. Börn eru mis-
fljót að tileinka sér lestrarleikni, og það má ekki gleyma þeim sein-
færari.
Mörg þessara seinfæru barna eru ótvírætt hæf til þess að verða
þokkalega læs á tveim vetrum, þó að þau nái því ekki á einum.
Lestrarbók þyrfti að vera til handa þeim, gerð með þeim hætti,
að erfiðustu hljóðasamböndin og þá einkum samhljóðasamböndin
hefðu enn meiri tíðni en 2. hcfti gefur kost á. Ég veit, að Isak Jóns-
son á nóg efni í fórum sínum og skilur þörfina á útgáfu slíkrar bókar.
Rannveig IJive.
Æfingar í hljóðlestri eftir Þorstein Sigurðsson.
Ekki alls fyrir löngu kom út lestrarbók, Æfingar i hljóölestri, eftir
Þorstein Sigurðsson. Bók þessi er allnýstárleg meðal íslenzkra kennslu-