Menntamál


Menntamál - 01.08.1972, Blaðsíða 10

Menntamál - 01.08.1972, Blaðsíða 10
lenzkum fræðiritum við liæfi unglinga (og er svo raunar enn), þegar undanskildar eru náms- bækur í sérstökum greinum. Margt í sumurn al- þýðlegum fræðibókum er auðlæsilegt ungling- um og þær jafnframt að nokkru leyti samdar við liæfi þeirra. Síra Þórarinn Böðvarsson (1825— 1895) tók sarnan mikið rit, Lestrarbók handa al- þýðu á íslandi, Kaupmannahöfn 1874, 424 bls. í íormála ritsins getur liöfundur þess, að það sé að miklu leyti sniðið eftir P. Hjorts Danslie Börneven, sumt efni tekið þaðan, þýtt og endur- sagt, en ýmsu sleppt og nýju efni bætt við, sem hæfði íslenzkri alþýðu. Höfundur víkur og að því, að hann haíi haft ungmenni í huga, er hann tók saman bókina, enda er sjálfsagt um helming- ur hennar vel við liæfi jjeirra. Bókin er í fimm köflum og spannar yfir margvísleg og ólík svið: Smásögur léttar aflestrar, dæmisögur, gamansög- ur, gátur, heilræði, orðskviðir og spakmæli. Þar eru og jjýðingar á Englinum, Litlu slúlkunni með eldspýturnar og Klukkunni eftir H. C. Ander- sen. Mörg kvæði eru í Lestrarbókinni, einkum eftir Jónas Hallgrímsson, Bjarna Thorarensen, Steingrhn Tliorsteinsson og Kristján Jónsson. Eru jjau yfirleitt mjög vel valin, og mörg Jjeirra eru enn í skólaljóðum og lestrarbókum barna og unglinga. Langir kaflar eru um náttúrufræði- leg eíni: Um manninn, dýrafræði, landafræði og lýsingu íslands. Fjallað er um ýmis atriði mannkynssögunnar, sögu íslands, lög og rétt. Á síðustu 29 bls. er rætt um trú og siðgæði. Seinni liluti bókarinnar er yfirleitt torlæsilegri, Jjótt jjar sé ýmislegt, senr svalaði fróðleiksfýsn greindra unglinga. Margar myndir og uppdrættir eru í bókinni. Hún varð mjög vinsæl og er nú orðin ákaflega fágæt. Um aldamótin síðustu færist nýtt líf í útgáfu barna- og unglingabóka, og hefur jjeim farið sífjölgandi svo að segja árlega, einkurn síðustu 30 árin eða svo. Hér er um svo rnarga höfunda að ræða, að einungis verður getið nokkurra jjeirra mjijg stuttlega og fyrst jjeirra, sem nú eru látn- ir. Vísast um jjetta til rits Eiríks Sigurðssonar skólastjóra: íslenzkar barna- og unglingabœkur 1900-1971. Akureyri 1972 48. bls. Erægasti barnabókahöfundur íslenz.kur er síra Jón Sveinsson (1857—1944), sem varð heimskunn- ur af barnabókum sínum. Hann missti föður sinn 1 1 ára, móðir hans var bláfátæk, og buðu Jesúítar, sem hér voru á ferð, honum til náms í Frakklandi 1870. Lauk hann Jjar prófi í guðfræði og lieimspeki, og starfaði síðan lengi sem kenn- ari, einkum í Danmörku. Hann snéri sér að rit- störfum um fimmtugt og samdi fjölda bóka, sem kallaðar eru Nonnabækur; Jjær hafa verið þýtkl- ar á yfir 30 tungumál. Hann er svo til eingöngu lesinn í kaþólskum löndum. Því miður hafa bækur hans ekki (eða svo til ekki) verið þýddar á ensku, og er hann Jjví óþekktur á hinu áhrifa- ríka og fjölmenna engilsaxneska menningar- svæði. Elelztu bækur hans liafa kornið út á ís- lenzku í ágætum jjýðingum og hafa rit hans til jjessa notið hér nrikilla vinsælda beggja kynja. Hann styðst í Nonnabókum sínum mjög við bernskuminningar sínar. Hann var frábær frá- sagnarmaður og fór víða um lieim og sagði börn- um sögur. Trúarskoðanir hans korna lítt eða ekki fram í ritum lians og siðferðispredikanir ekki heldur. Bækur sínar frumsamdi hann á jjýzku. Á allri sinni löngu ævi konr lrann aðeins einu sinni til Islands. Hann var heiðursborgari Akur- eyrar, og þar stendur enn litla liúsið, jrar senr lian ólst upp. Þar er nú safn verka hans, og lrver sá, sem á leið til Akureyrar, ælti ekki að láta hjá líða að skoða þetta safn. Þjóðskáldið Þorsteinn Erlingsson (1858—1913) Jjýddi mörg barnaævintýri, Söguna af Tuma þumli, Tólf þrautir Heraklesar, Ferðir Múnch- hausens, För Gullivers eftir Svift. Konru öll Jressi rit út í Rv. 1913. Hann samdi og dýrasögur, sem komu út í heildarútgáfu, Málleysingjar, Rv. 1928. Á öllum Jressum sögunr eru snilldartök. Hamr orti og nokkur heillandi barnaljóð, sem svo að segja lrvert barn kann. 1903 gaf Oddur Björns- son út á Akureyri Kveldúlf, Smásögusafn lranda börnum og unglingum, 80 bls. Þar er lrin vin- sæla saga Steinn Bollason, senr hefur síðar verið gefin út sérstaklega. Sigurbjörn Sveinsson kennari (1878—1950) var afar vinsæll barnabókahöfundur. Er hann ekki livað sízt merkilegur fyrir þá siik, að hann fyrst- ur íslendinga sækir efni sitt að nriklu leyti í MENNTAMÁL 148

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.