Menntamál


Menntamál - 01.08.1972, Blaðsíða 14

Menntamál - 01.08.1972, Blaðsíða 14
Lindgren, Finn Havrevold, Th. Egner, Robert Fisker, Tove Jansson. Til flestra þessara þýðinga er vel vandað. Allmargar erlendar barna- og nnglingabækur virðast lítið erindi eiga við íslenzk börn og ekki vera til menningarauka. Þýðingarnar eru mjög misjafnar. Sumar eru á óvönduðu máli, þýðanda er stundum ekki gelið, prófarkalestri er áfátt og lítið er til útgáfu þeirra að öllu leyti vandað. Aðr- ar eru þokkalega eða vel gefnar út, málfar þeirra gott eða sæmilegt. Sumar eru ágætlega þýddar, og tel ég rétt að hér korni fram, að við eigum allmarga þýðendur barnabóka, sem vanda verk sitt vel. Eg rninni hér aðeins á einn afburðagóð- an þýðanda barnabóka, Freystein Gunnarsson, fyrrv. skólastjóra. Varla finnst mér sanngjarnt að ætlast til þess, að við getum gefið út eins fagrar barnabækur og beztu slík rit eru meðal stórþjóða að því er tekur til mynda við liæfi barna. Af er- lendum bókum, sem eru með mjög góðmn mynd- um, eru fjórar bækur, sem lðunn hefur gefið út 1971 og 1972, þrjár (ævintýri) eftir hollenzkan höfund og hollenzkan myndlistarmann, og ein eftir franska. Örnólfur Thorlacius liefur þýtt þrjár þeirra, en síra Bernharður Guðmundsson, æskulýðsfulltrúi, eina. Bækurnar eru ætlaðar frekar ungum börnum, lesmálið er stutt og vel við hæfi þeirra og þýðingarnar eru vandaðar. Þá má ekki ganga hér fram hjá Gœsamömmu. Visna- bák Æskunnar, Rv. 1970. Myndirnar eru eftir rússneskan mann, Feoclor Rojankovsky, sem starfað hefur í Frakklandi og Bandaríkjunum og talinn er einn allra fremsti teiknari í barna- bækur, sem nú er uppi. Kristján skáld frá Djúpa- læk hefur Jjýtt og umort barnaljóðin. Ef til vill er óvinnandi verk að færa erlendar klassiskar barnavísur í góðan íslenzkan búning, og grunar mig, að varla muni mörg íslenzk börn læra þessar vísur eða Jrær verða Jreirn Iiugstæðar. Prentun sumra litmyndanna liefur ekki tekizt rétt vel. Nokkru áður gaf Bókaútgáfa Æskunnar út Æv- intýri barnanna (flest heimskunn ævintýri í bandarískum Jrýðingum og endursögnum) með myndum eftir F. Rojankovsky. 1. útg. Rv. 1966, 2. útg. 1971. Njóta ævintýrin sín vel í lipurri ])ýð- ingu Þóris S. Guðbergssonar, kennara. Prentun litmynda í seinni útgáfunni er nokkuð áfátt. Þessar bækur hafa selz.t hér mjög vel. Gæsa- mannna (Thc Tall Book ot Mother Goose) kom út i New York og London 1942 og Ævintýri barnanna (The Tall Book of Nursery Tales) 1944 hjá sama útgáfufélagi, Harpers & Brothers. Urðu Jrær báðar metsölubækur í Bandaríkjun- um. Að vísu er enginn hörgull á sígildum íslenzk- um bókmenntum við hæfi barna- og unglinga, allt frá fornsögum, þjóðsögþm og ævintýrum til nútímahöfunda. En sá galli er á, að gel'a Jryrfti miklu fleiri þcssara rita út í hentugum og auo- læsilegum útgáfum handa börnum og ungling- um. Úrval Björns Jónssonar ritstjóra úr þjóð- sögum Jóns Árnasonar var einkum miðað við unglinga, og lásu Jjeir Jrað mikið, enda er [)að fyrir löngu selt upp. En nú er ísafoldarprent- smiðja að prenta Jrað á ný í endurskoðaðri út- gáfu Óskars Halldórssonar lektors. Þyrfti einnig að gera úrval úr yngri þjóðsagnasöfnum handa unglingum. Á sama hátt Jryrftum við að leggja meiri stund á að gefa út úrvalsjrætti úr íslend- ingasögum og öðrum fornritum. Þær eru sér- staklega vel til Jiess fallnar að gera þeim kjarna þjóðmenningarinnar innh'fan. Fáir munu geta tekið undir með skáldinu og sagt: „Þín fornöld og sögur mér búa í barm“, cf ])cir hal'a ekki mót- azt í bernsku af anda þeirra. Úrval úr Þúsund og einni nótt, sem Tómas Guðmumlsson og Páll Skúlason ritstjóri þýddu og gáfu út, Rv. 1934, Arabiskar nœtur, og einkum var ætlað börnum, seldist fljótt upp og hefur ekki verið á bókamarkaðinum s.l. 20—25 ár. Bækur Stefáns Jónssonar hafa flestar eða allar verið ófáanlegar um margra ára skeið, en nú er ísa- foldarprentsmiðja að gefa út rit hans í heild. Mörg fleiri dæmi mætti nefna. Ein stór van- rækslusynd okkar er sú, að oft erti góð eldri barnarit uppseld um margra ára og áratuga skeið. Sakir ])essarar vanrækslu okkar „týnast“ mörg ágæt rit handa börnum og unglingum. Þau eru aðeins til í nokkrum bókasöfnum og í eigu ör- fárra manna. Börn eiga almennt engan kost þcss að lesa Jrau og verða þeim handgengin. Þýddar barna- og unglingabækur eru mikill MENNT.AMÁL 152

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.