Menntamál


Menntamál - 01.08.1972, Blaðsíða 26

Menntamál - 01.08.1972, Blaðsíða 26
iiliða mynd af erfiðleikum skólabarna, en þó með þeirri undantekningu, að börn, sem iila sóttu skóla, voru vanrækt eða heimilislaus sáust sjaldan iijá starfandi sáifræðingum, en þeim höf- um við síðan haft kynni af á Sálfræðideild skóla. III. Byrjun sálfræðiþjónustu Arið 1960 var að frumkvæði Reykjavíkurborg- ar kontið á sálfræðiþjónustu fyrir barnaskólana þar. Var þetta sérstaklcga að þakka áhuga og skilningi fræðslustjóra og fræðsluráðs. Ber borg- in ein kostnað af þessari starfsemi. Jónas Páls- son, sálfræðingur, var ráðinn forstöðumaður Sál- fræðideildar, starfaði hann einn fyrsta árið, en tveir starfsmenn bættust við haustið 1961. Síðan Iiafa starfsmenn Sálfræðideildar verið 3—6, nokk- uð breytilegur fjöldi, jafnan hefur verið heimilt að ráða fleiri, en ekki fengizt fólk með tilskyld- an undirbúning. Við héklum kannski í upphafi, að 3—4 menn gætu annað þeim verkefnum, sem Sálfræðideild bærust, en fyrsta óvænta uppgötvunin, sem ég a.ink. gerði, var sú, að ýmsir erfiðleikar skóla- barna væru miklu tíðari en ég liafði haldið. Hafði e.t.v. búizt við að 1—2% skólabarna þyrftu að leita sálfræðings, en það reynast miklu fleiri, sennilega allt að 10%, sem þess þurfa einhvern tíman á skólaferli sínum. Þctta átti við um allar tegundir erfiðleika, t.d. voru vangefin og mjög tornæm börn rnun fleiri en virtust, meðan málið var lítt kannað, en mest kom á óvart tíðir náms- erfiðleikar barna, sem höfðu eðlilegan greindar- þroska. Eiga þeir rætur að rckja til margvíslegra annarra orsaka, oftast tilfinningalegra vand- kvæða barnsins, sem tengd eru fjölskyldulífi þess og uppeldi og tíðast afleiðing geðrænna vand- kvæða foreklra sjálfra, slundum erfiðum aðstæð- um foreldra, sem vinna bæði úti, annað þeirra oft fjarri heimilinu, stundum vantrú á getu barnsins eða áhugaleysi þeirra á árangri þess, kunnáttuleysi í að aðstoða við heimanám o.s.frv. Oft eru einhver mistök við kennslu líka orsök námserfiðleika, ekki sízt of hröð yfirferð við byrjunarkennslu í lestri, lítil eða neikvæð tengsl og takmarkaður skilningur milli kennara og nemanda, fjarvist barns vegna veikinda, svo að það missir úr námi og vinnur það aldrei upp aftur og margt fleira. Þá eru all- mörg biirn í Reykjavík, og jjað vaxandi fjöldi, sem kalla mætti heimilislaus heima hjá sér vegna andlegs vanþroska foreldra, geðsjúkdóma, en tíð- ast ])ó vegna drykkjuskapar, sem greinilega fer vaxandi, svo að börn hafa stundum engin skil- yrði til að stunda nám og sækja skóla vegna upplausnar og umhirðuleysis á heimili. Vandkvæði þau, sem bárust hinni nýju Sál- fræðideild, urðu því miklu fleiri og stærri en nokkurn hafði órað fyrir, og enginn vissi fyllilega, hvernig fram úr þeim öllum skyldi ráða, enda aðstæður til þess takmarkaðar þá. Við, sem vinn- um við Sálfræðideild, liófum því verk, sem eng- inn hafði unnið hér áður, svo heilið gæti og höfum undanfarin 10 ár verið að þreifa okkur áfram um starfsaðferðir og rnyndun úrræða til úrbóta. Að vísu er hægt að styðjast við erlenda reynslu, en hvort tveggja er, að sú reynsla bygg- ir ekki heldur á löngu starfi erlendis, svo að sjónarmið eru sífellt að breytast, og vandamál hvers lands eru að einhverju leyti sérstæð vegna ólíkra þjóðfélagsliátta. í frumvarpi því að grunnskólalögum, sem nú liggur fyrir Alþingi, er gert ráð fyrir tveint starfs- mönnum á Sálfræðideld fyrir liverja 2500 nem- endur í barnaskólum, og geri ég ráð fyrir sam- kvæmt fenginni reynslu, að það verði sízt of mikið starfslið. IV. Tilgangur Það er oft spurt, hvort Sálfræðiþjónusta geti orðið skólunum, kennurum og starfi þeirra að einhverju liði, og felst í þeirri spurningu, að sé svo ekki, hljóti luin að vera tilgangslítil. Þessu er þó ekki svo l'arið, og þetta vekur einmitt spurn- inguna um tilgang og markmið sálfræðiþjón- ustu. Það mætti eins spyrja, hvort hún eigi ekki frekar að vera fyrir foreldra, styðja uppeldis- og menntunarhlutverk þeirra engu síður en skól- anna, og það því frekar, sent allt að helmingur barnanna kemur hingað fyrir frumkvæði for- eldra. Mitt svar er það, að bæði foreldrum og MENNTAMÁL 164

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.