Menntamál - 01.08.1972, Blaðsíða 18
Fimmta þing norrænna
barna- og unglingabóka-
höfunda í Reykjavík
♦
♦
Dagana 23.—25. júní 1972 var haldið í Norr-
æna húsinu í Reykjavík 5. þing norrænna
barna- og unglingabókahfundöa. Þingið sátu
108 fulltrúar og skiptust þannig á Indin: frá
Svíþjóð 37,ö frá Noregi 13, frá Danmörku 10,
frá Finnlandi 3, frá Færeyjum 1 og 44 frá ís-
landi.
Þingfulltrúar voru, auk barna- og unglinga-
bókahöfundanna, bókaverðir, útgefendur,
gagnrýnendur, blaðamenn, starfsmenn sjón-
varps og útvarps, kennarar, fóstrur og full-
trúar frá leikhúsum og fræðslumyndasafni.
Auk þess fulltrúar frá yfirstjórn fræðslumála
á íslandi.
Rithöfundasamband íslands stóð fyrir þing-
inu, og sat stjórn þess þingið, en nefnd barna-
og unglingabókahöfunda annaðist á vegum
þess allan undirbúning og framkvæmd þing-
haldsins. Nefnd þessi var skipuð af stjórn R.í.
haustið 1970 og í henni eiga sæti: Ármann
Kr. Einarsson formaður, Vilborg Dagbjartsdótt-
ir, Gunnar M. Magnúss og Filippía Kristjáns-
dóttir (Hugrún).
Menntamálaráðherra Magnús Torfi Ólafs-
son setti þingið. Fyrirlestra héldu dr. Símon
Jóh. Ágústsson prófessor um þörfina á sér-
stökum þarnabókmenntum, Stefán Júlíusson
bókafulltrúi ríkisins um börn og bókasöfn,
séra Sigurður Haukur Guðjónsson gagnrýn-
andi um barna- og unglingabækur og fjöl-
miðla. Tók han fyrir gagnrýni í dagblöðum
og tímaritum. Hinrik Bjarnason framkvæmda-
stjóri Æskulýðsráðs ræddi um barna- og ungl-
ingabókmenntir og fjölmiðla, tók hann fyrir
útvarp, sjónvarp og kvikmyndir.
Miklar og fjörugar umræður voru um öll
þessi efni, og skiptu fulltrúar landanna með
sér að stjórna fundum og leiða umræðurnar.
Formaður Rithöfundasambands íslands,
Sigurður A. Magnússon, sleit þinginu í Valhöll
á Þingvöllum; þar kom fram uppástunga um,
að 6. þing norrænna barna- og unglingabóka-
höfunda yrði haldið í Færeyjum næst. Fögn-
uðu þingfulltrúar því með lófaklappi.
í tengslum við þingið efndi Norræna húsið
til sýningarinnar „Norrænar barnabækur
1972“. Var sýningin opnuð 18. júní af borgar-
stjóranum í Reykjavík, Geir Hallgrímssyni.
Rithöfundasamband íslands gaf út kynn-
ingarrit um íslenzka barna- og unglingabóka-
höfunda, „íslenzkar barna- og unglingabæk-
ur 1900—1971“. Eiríkur Sigurðsson rithöf-
undur tók ritið saman, en fyrrverandi formað-
ur R.Í., Matthías Johannessen, skrifaði for-
mála. Öllum þingfulltrúum var gefið ritið.
Meðfylgjandi tillögur voru samþykktar.
MENNTAMÁL
156