Menntamál - 01.08.1972, Qupperneq 11
daglegt líf barna og unglinga. Þótti því mikil
nýjung að sögum lians. Beztu sögur lians halda
enn vinsældum sínum og hafa verið teknar upp
í íslenzkar lestrarbækur. Meðal rita hans er
llermkan I—II, Rv. 1907—1908, Þrjú œvintýri,
Rv. 1909, Geislar, Rv. 1919, Skeljar I-IV, Rv.
1930—1934. Heildarútgáfa af verkum hans í
tveimur bindum liefur komið út í Rv. 1948 (ísa-
foldarprentsmiöja) og 1971 (Æskan).
Mikilhæfasti og listrænasti íslenzkur barna- og
unglingabókahöfundur var vafalítið Stefán Jóns-
son kennari (1905—1966), og voru margar bækur
hans einnig við liæfi almennra lesenda. Meðal
beztu og vinsælustu barna- og unglingasagna
Stefáns má nefna Söguna hans Hjalta litla og
Björt eru bernskuárin, báðar gefnar út í Reykja-
vík 1948; Margt getur skemmtilegt slteð, Rv.
1949; Mamma skilur allt, Rv. 1950; Hjalti liem-
ur heirn, Rv. 1951; Fólkið á Steinstúni, Rv. 1954;
Óli frá Skuld, Rv. 1957. Auk þess samdi liann
tvi) barnaleikrit og orti fjölmörg góð og vinsæl
ljóð lianda börnum, sem komu út í nokkrum
heftum. — Tvær bækur hans hafa verið þýddar á
norsku og ein á rússnesku. — Hallgrímur Jónsson
skólastjóri (1875—1961) samdi margar barnabæk-
ur og orti barnaljóð. Hann var um hríð ritstjóri
Unga íslands ásamt Steingrími Arasyni. Stein-
grímur (1879—1951) þýddi og staðfærði margar
barnasögur og leikrit og tók saman leikjabækur.
Hann var lengi ritstjóri Unga íslands og sá um
útgáfu ársritsins Sólskins 1938, 1940 og 1948.
Margrét Jónsdóttir kennari (1893—1971) frum-
samdi og þýddi margar barnabækur, samdi vin-
sæl barnaleikrit og orti barnaljóð. Veigamestu
rit hennar eru Toddusögurnar, bókaflokkur í
fjórum bindum, Rv. 1951—1955. Hún var rit-
stjóri Æskunnar 1928—1942. — Ragnheiður Jóns-
dóttir kennari (1895—1967) var afkastamikill rit-
höfundur og gengur liún e.t.v. næst Stefáni Jóns-
syni að listfengi. Hún samdi vinsæl ævintýraleik-
rit handa börnum: Ævintýraleiki, Rv. 1934 og
Hlina kóngsson, Rv. 1943, sem eru enn í miklum
metum rneðal barna. En einkum samdi hún
margar bækur handa unglingsstúlkum, flokka-
bækur, svo kallaðar Dórubœkur og Kötlubœkur.
Báðir flokkarnir eru í mörgum bindum, og hafa
bækurnar notið mikillar hylli unglingsstúlkna.
Sama máli gegnir um Glaðheimabœkur hennar.
Sigurður Thorlacius skólastjóri (1900—1945)
samdi tvær barnabækur: Sumardaga, unglinga-
bók, Rv. 1939, og Um loftin blá, unglingabók,
Rv. 1940. Þessi rit bera vitni næmri og ferskri
náttúruskynjun höfundar og má skipa þeim í
röð beztu íslenzkra barnabóka, einkum liinni
lyrri. Báðar hafa þær verið endurprentaðar.
Óskar Kjartansson (1911 — 1937) skrifstofumaður
samdi á sinni stuttu ævi mörg barnaleikrit. Hafa
þau öll verið sýnd á leiksviði. Vinsælast þeirra
mun vera Undraglerin, sem sýnd voru í Þjóð-
leikhúsinu 1959 (22 sýningar). Fæst leikrita hans
hafa verið prentuð. Nína (Jónína) Tryggvadóttir
(1913—1968) listmálari samdi og myndskreytti
nokkrar barnabækur. Vinsælust þeirra mun hafa
verið smábarnabókin Kötturinn, sem hvarf, Rv.
1947. Hún myndskreytti einnig Tindáta eftir
Stein Steinarr, Rv. 1943. Jóhannes (Jónasson)
úr Kötlum (1899—1972) skáld og kennari samdi
nokkrar barnabækur, mest ljóð: Jólin koma, Rv.
1932; Ömmusögur, Rv. 1933; Bakkabrœður, Rv.
1941; Ljóðið urn Labbakut, Rv. 1946. Allar þess-
ar bækur liafa hlotið vinsældir barna, einkum
e.t.v. Jólin koma. Auk þess hefur hann joýtt
nokkrar barnabækur.
Þessi upptalning er orðin nokkuð löng, en
margra íslenzkra látinna barna- og unglingabóka-
höfunda á þessari öld rnætti geta hér e.t.v. með
jafnmiklum rétti. Frú Theodóra Thoroddsen
(1863—1954) gaf út Þulur, Rv. 1916, fagurlega
myndskreyttar eftir systurson hennar, Guðmund
Thorsteinsson (Mugg). Þulurnar eru öllu frem-
ur við hæfi fullorðinna manna en barna. Mugg-
ur (1891—1924) samdi sjálfur og myndskreytti
tvær litlar barnabækur: Negrastrália, Rv. 1923,
og söguna af Dirnmalimm, Rv. 1942, 4. útg. Rv.
1963. Helga Egilsson frænka hans breytti hinni
síðarnefndu í leikrit, sem sýnt var í Reykjavík og
á Akureyri. Síra Friðrik Friðriksson (1868—1961)
þýddi og frumsamdi barna- og unglingabækur.
Páll Árdal (1857—1930) kennari sarndi ljóð og
leikrit, sem hæfa börnum og unglingum. Vinsæl-
ust barnakvæða hans munu vera En livað það var
sliritið og Hún Þyrnirós var bezla barn. Þá má
MENNTAMÁL
149