Menntamál - 01.08.1972, Blaðsíða 19
ÁLYKTANIR
Fimmta þings norrænna barna- og unglingabókahöf-
unda, er haldið var í Norræna húsinu í Reykjavík 23.—
25. júní 1972.
1. Fimmta þing norrænna barna- og unglingabóka-
höfunda krefst þess, að Norræni menningarsjóðurinn
verði efldur svo, að honum auðnist að veita fé til sam-
norrænna verkefna á sviði menningar fyrir börn.
2. Fimmta þing norrænna barna- og unglingabóka-
höfunda, haldið í Norræna húsinu í Reykjavik dagana
23.—25. júní 1972, leggur áherzlu á mikilvægi þess, að
þýðingarmiðstöðvarmálið nái fram að ganga, og bendir
jafnframt á málfarslega sérstöðu Færeyinga, Finna,
Lappa, Grænlendinga og íslendinga. Ennfremur vekur
þingið athygli á nauðsyn þess, að barna- og unglinga-
bækur verði ekki afskiptar, þegar þækur verða valdar
til þýðinga, verði norræn þýðingarmiðstöð að veruleika.
3. Fimmta þing norrænna barna- og unglingabóka-
höfunda, haldið í Norræna húsinu í Reykjavík dagana
23.—25. júní 1972, styður Rithöfundasamband íslands
í viðleitni þess til að fá íslenzka ríkið, borgar- og bæj-
arráð og bókaútgefendur til að efna til íslenzkra barna-
bókaverðlauna, hliðstætt því sem lengi hefur tíðkazt
annars staðar á Norðurlöndum.
4. Fimmta þing norrænna barna- og unglingabóka-
höfunda, haldið í Norræna húsinu í Reykjavik dagana
23.—25. júní 1972, beinir þeim tilmælum til allra dag-
blaða á Norðurlöndum og tímarita, sem fjalla um menn-
ingarmál, að þau gagnrýni samvizkusamlega og að
staðaldri barna- og unglingabækur, barnatíma í hljóð-
varpi og sjónvarpi og sýningar barnaleikrita.
5. Fimmla þing norrænna barna- og unglingabóka-
höfunda beinir því til Norðurlandaráðs og ríkisstjórna,
sem hafa minnihlulaþjóðir í löndum sínum, að gæta
menningarlegs réttar þeirra og stuðla þannig að því,
að öll börn á Norðurlöndum njóti þeirra sjálfsögðu
mannréttinda að eiga aðgang að bókum á móðurmáli
sínu.
6. Vér, norrænir barna- og unglingabókahöfundar,
saman komnir í Norræna húsinu í Reykjavík í tilefni af
5. þingi norrænna barna- og unglingabókahöfunda,
viljum beina athygli Norðurlandaráðs að sífeldlega versn-
andi aðstöðu barna- og unglingabókmennta.
Við svo búið má ekki lengur standa, að verzlunarfyrir-
tæki eins og bókaútgáfur, beri ein ábyrgð á útgáfu al-
varlegra, listrænna og leitandi barna- og unglingabók-
mennta. Útgefendur eru að skera niður þessa útgáfu,
i staðinn flæðir á markaðinn hreinasti gróðavarningur.
Þetta ógnar nú hverslags menningu fyrir börn. Þegar
til lengdar lætur er slíkt einnig nokkur hætta fyrir norr-
æna menningu i heild sinni.
Vér lítum svo á, að útgáfa barna- og unglingabóka sé
félagslega mikilvægt atriði, og samfélaginu beri að
taka á sig verulegan hluta af ábyrgðinni á því. Vér
skorum á Norðurlandaráð að leita nú þegar úrræða til
að taka á sig þá ábyrgð.
MENNTAMÁL
157