Vorið - 01.12.1968, Page 35
Jónsson, listmálari. Þar hóf Ríkarður
listamannsferil sinn með því að forma
úr tálgusteini ýmsa smíðisgripi.
Síðar komst hann til náms. Fyrst lil
Reykjavíkur, þar sem liann lærði tré-
skurð, og síðar í listaháskólann í Kaup-
mannahöfn, þar sem hann lagði fyrir sig
höggmyndalist.
Segja má að Ríkarður hafi vakið upp
og endurnýjað hina fornu íslenzku tré-
skurðarlist. Á áttræðisafmælinu getur
hann litið yfir árangursríkan starfsferil.
Ríkarður ann Austurlandi heitt og
átthögum síntirn. Því liefur hann lýst
vel í eftirfarandi vísu:
Fyrnist slóð urn fjöll og sand,
fýkur í gömlu sporin.
Alltaf þrái’ ég Austurland,
einkum þó á vorin.
Þjóðin er í mikilli þakkarskuld við
þennan aldna lislamann.
Vorið óskar honum alls góðs á þess-
um merku tímamótum.
E. Sig.
-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-t
VORIÐ 177