Vorið - 01.12.1968, Side 40

Vorið - 01.12.1968, Side 40
enginri rennir huga að vínarbrauðun- um og bollunum. Aki er eins ákafur og hinir, er með í leiknum á sinn hátt, veifar hand- leggjunum, bendir á félagana, kallar og hvetur þá. En það er ekki mikið hlust- að á hvað hann segir, nú hafa þeir snill- inga með í hópnum, reglulega snillinga, heilfætta stráka, sem eru bæði fyrir auga og eyra. Að lokum gefst Aki upp, þagnar og horfir á. Að lokum hætta þeir knattleiknum, sveittir og óhreinir þjóta þeir inn. Nú fær afgreiðslufólkið nóg að gera. Skipzt er á spurningum og svörum, því að nú kemur útskýring á því, sem gerðist á vellinum. Þeir hópast utan um Yallnadrengina, og setja vel á sig það, sem sagt er. Þeir muna leikinn og fara yfir hann. Þeir segja frá mistökum, sem urðu og sýna með höndum og fótum — einnig með höfðinu — hvað hefði átt að gera. Hvað hefur drengur, sem er öðru vísi en hinir, að gera hér, með veikan fót og hækjur? Áki má vera ánægður yfir, að geta verið með drengjunum hér. Hann stendur í hópnum kringum Jón og hlustar. En brátt situr hann á sama stað og áður, einmana upp við vegginn. Gestum hans er veitt mest at- hygli. Hann sér hárlufsurnar á þeim, og sér við og við óhreinan gulan stakk. Það eru raddir þeirra, sem yfirgnæfa hina. Við og við man hann eftir ræðunni og rifjar hana upp. — Þá finnst hon- um ekkert í hana varið. Þetta er bull um félagana. Hvernig eru þeir nú? Það er bull um merkisteininn, því að hann hafði aldrei hugsað sér hann svona. — Og að bjóða gestina velkomna, Jrað er tóm vitleysa, sem hann mundi aldrei fá sig til að segja. Það hafa hinir gert sjáifir, hugsar hann, Jregar hann sér hve Björndælingarnir dást að Vallna- drengjunum. Hann lítur í kringum sig eins og hann sé að leita eftir hjálp. Hann gæti vel gengið tii Sveins eða Agnars og skipzt á við Jrá nokkrum orðum — eða til stúlknanna við eldavélina. — Já, Hjör- dís! — Allt í einu verður honum það ljóst að bezt er að tala við Hjördísi. Og hann getur vel rutt sér braut til hennar. Það hefði hann átt að gera fyrir löngu. Það er honum sjálfum að kenna, að hann situr hér einmana og tekur ekki þátt í neinu. Þessi bugsun vekur gleði og hlýju, og nú stendur hann upp til að fara til henn- ar. Hann finnur að strákarnir eru fús- ir til að rýma fyrir honum, svo að hann komist áfram. Hann brosir og segir ýmisleg gamanyrði meðan hann leitar með augunum eftir stúlku við eldavél- ina. En nú hafa stúlkurnar nóg að gera. Sumar safna saman bollum og diskum, aðrar þvo upp, og tvær selja og af- greiða eins hratt og þær geta. Þó er alltaf heill hópur af drengjum í kring- um þær. Þeir eru með peninga í hönd- unum og biðja um meira. Einmitt núna eru tveir drengir í gulum stökkum, sem langar í kaffi. Það eru þeir Jón og Níels. Þeir standa fyrir Aka og þeir eru 182 VORIÐ

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.