Vorið - 01.12.1970, Blaðsíða 6
* **** * **+* * * * * * >f * )<- * x- * * *** **************+* )«■)<->«■)♦•+)»• )f)f **
Við skulutn hefja rabbið að þessu
sinni með dæmisögu um kærleikann, þar
sem jólin eru á næsta leiti.
Trúboði mætti Iítilli, kínverskri telpu,
sem rogaðist með strákanga. „Þú hefur
þunga byrði að bera,“ sagði trúboðinn.
„Þetta er engin byrði,“ svaraði hún.
„Þetta er hann bróðir minn.“
Þessi saga minnir okkur á það, sem
mannkynið skorlir mest nú á tímum,
bræðralagshugsjón milli manna og
þjóða. Þetta eiga jólin að minna okk-
ur á.
Geimfararnir, sem hingað komu í
haust, sögðu að geimferðir gerðu okk-
Rnbbnð
við
(esendur
ur ljóst, að við húum öll á sama linett-
inum, og því þyrfti að vinna að friði
meðal jarðarbúa.
Jólin gefa börnunum hvíld frá skóla-
bókunum og tækifæri til að lesa
skemmtilegri bækur. Mikið kemur út af
liarnabókum um jólin bæði þýddum og
frumsömdum, og ég veit að mörg börn
hlakka til að lesa jólabækurnar sínar.
I þessu blaði er einnig ýmislegt um
jólin bæði kvæði og sögur. En jólaboð-
skapurinn vekur alltaf það bezta í sál
okkar. Jólaósk mín til ykkar er sú, að
þið megið varðveita sem lengst jóla-
gleðina.
Vorið flylur þeim iillum þakkir, sem
greitt hafa það skilvíslega, bæði útsölu-
mönnum og áskrifendum, og væntir þess,
að þeir, sem eiga það eftir, geri það
hráðlega.
Blaðið stendur í þakkarskuld við út-
sölumenn sína, og hef ég haft mikla
ánægju af að kynnast mörgum þeirra.
Vorið sendir öllum lesendum sínum
bezlu óskir um gleðileg jól og gott og
farsælt komandi ár.
E. Sig.
-ic-K-K *-»<*+* ****+ * -X -X-k -K-K-k-ic-K -*-** -***-»**++++++++ + + * ++++++ +++++**+
148 VORIÐ