Vorið - 01.12.1970, Blaðsíða 44
ÞÓRODDUR JÓHANNSSON:
Land§mot U.M.F.l.
Á næsta ári, 10. og 11. júlí, verSur
14. landsmót Ungmennafélags Islands
-háð á Sauðárkróki, og sér Ungmenna-
samband Skagafjarðar um undirbúning
mótsins. Að undanförnu hefur verið
unnið að gerð íþrótltamannvirkja á
Sauðárkróki og verður þar ákjósanleg
aðstaða, bæði fyrir keppendur og al-
menna mótsgesti.
Landsmót U.M.F.Í. eru yfirleitt lnild-
in þriðja hvert ár, lil skiptis hjá béraðs-
samböndunum og þykja jafnan merkir
viðburðir, félags- og íþróttalega séð,
enda mjög lil þeirra vandað. Má segja
að mótin séu að vissu leyti hápunktur-
inn í slarfi ungmennafélaganna í heild.
Edda Lúdvíks-
dóttir, Sauðár■
króki, ein efni-
legasta frjáls-
íþróttakona
landsins. Átti t.
d. Islandsmet í
hástökki innan-
liúss um tíma
Dagskrá landsmótanna hefur ælíð ver-
ið fjölbreytt og þjóðleg í senn. íþróttir
skipa veglegan sess á landsmótunum. Á
þeim hefur oft veriö háð tvísýn, spenn-
andi og drengileg keppni, sem gaman
væri að rifja upp, en bíöur betri tíma.
Á undangengnum landsmótum hafa
fjölmennar fimleika- og þjóðdansasýn-
ingar sett glæsilegan svip á dagskrána.
Svo var t. d. á Eiðum 1968. Þar fór
fram fimleikasýning rúmlega 100 ung-
menna af Austurlandi og vakti eftir-
minnilega athygli.
Á landsmótunum er keppt í frjálsum
íþróttum, sundi, handbolta, knattspyrnu,
körfuknattleik, glímu, skák og ýmsum
greinum starfsíþrótta. Á síðasta lands-
móti voru keppendur nær eitt þúsund,
auk þátttakenda í sýningaflokkum.
Einstaklingar og félög leggja mikla
áherzlu á að undirbúa þátttöku sína á
landsmótum sem -bezt, svo árangur verði
sem glæsilegastur. Eru mótin því eflaust
mikill aflgjafi íþróttastarfsins í land-
inu. Landsmótin hafa unnið sér heiðurs-
sess í huga yngri sem eldri ungmenna-
186 VORIÐ